Hoppa yfir valmynd
6. september 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Bréf velferðarvaktarinnar til sveitarstjórna í upphafi skólaárs

 

Til sveitarstjórna                                                                                   1. september 2010

Ályktun velferðarvaktarinnar í upphafi skólastarfs.

Á fundi velferðarvaktarinnar, 24. ágúst síðastliðinn, var samþykkt að beina því til sveitarstjórna og skólanefnda að huga sérstaklega að líðan barna í upphafi skólaárs. Mikilvægt er að kostnaði við kaup á skólavörum og þátttöku í frístundastarfi sé haldið í lágmarki og tryggt að kostnaður heimilanna vegna skólastarfs hindri í engu þátttöku barna í leik og starfi.

Velferðarvaktin hefur miklar áhyggjur af biðlistum barna á frístundaheimilin og hvetur sveitarstjórnir og skólanefndir til að leita allra leiða til að laða að hæft starfsfólk til að tryggja þessa mikilvægu starfsemi.

Að lokum leggur velferðarvaktin áfram áherslu á, sbr. bréf vaktarinnar til sveitarstjórna 15. september 2009, að tryggt verði með öllum tiltækum ráðum og fylgst með að börn í skólum á þeirra vegum fái hádegisverð alla skóladaga.

 

Með góðum kveðjum fyrir hönd velferðarvaktarinnar,

Lára Björnsdóttir

 

Afrit send:
Félagsmálanefndum,
skólanefndum og
íþrótta- og tómstundaráðum.

Nánari upplýsingar um velferðarvaktina er að finna á heimasíðu vaktarinnar http://www.felagsmalaraduneyti.is/velferdarvaktin/

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum