Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Skýrsla um störf Velferðarvaktarinnar árin 2017-2018

Velferðarvaktin hefur skilað félags- og barnamálaráðherra  meðfylgjandi stöðuskýrslu þar sem fjallað er um starfsemi vaktarinnar á árunum 2017–2018.

Velferðarvaktin var sett á laggirnar í febrúar 2009 í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Hefur hún nú starfað í tæpan áratug og í tíð sex ráðherra félagsmála.

Í skipunarbréfi vaktarinnar segir að hún skuli huga „að velferð og afkomu efnalítilla barnafjölskyldna, sérstaklega einstæðra foreldra og barna þeirra og afla upplýsinga um aðstæður þeirra sem búa við sára fátækt svo draga megi úr henni“.

Á þessum grundvelli hefur Velferðarvaktin starfað. Í meðfylgjandi skýrslu er fjallað stuttlega um helstu verkefni, tillögur og ábendingar Velferðarvaktarinnar á árunum 2017–2018.

Samkvæmt skipunarbréfi er gert ráð fyrir því að Velferðarvaktin afhendi ráðherra stöðuskýrslur með reglubundnum hætti og miðli stjórnvöldum jafnt sem almenningi upplýsingum um störf sín. Er stöðuskýrslu þessari ætlað að uppfylla það ákvæði. Skýrslan er samin í anda fyrri stöðuskýrslu.

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum