Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Velferðarvaktin ráðgefandi aðili vegna Covid-19

Miklar áskoranir fylgja Covid-19 faraldrinum sem nú geysar um heimsbyggðina. Faraldurinn hefur áhrif á félagslega og fjárhagslega stöðu margra einstaklinga og fjölskyldna og er mikilvægt að mótvægisaðgerðir stjórnvalda mildi áhrifin sem mest. Strax í mars í fyrstu bylgju faraldursins var ákveðið að Velferðarvaktin yrði ráðgefandi aðili fyrir viðbragðsteymi velferðarþjónustu. Viðbragðsteymið byggði á víðtæku samstarfi ríkis, sveitarfélaga, fagaðila og hagsmunaaðila um allt land svo tryggja mætti öryggi og nauðsynlega þjónustu fyrir þá sem mest þurftu á henni að halda, svo sem fatlað fólk, aldraðir og börn og fjölskyldur.

Í júní var viðbragðsteyminu breytt í uppbyggingarteymi félags- og atvinnumála í kjölfar Covid-19. Velferðarvaktinni var einnig falið að vera ráðgefandi aðili fyrir nýja uppbyggingarteymið. Uppbyggingarteymið hefur það hlutverk að safna og miðla upplýsingum um stöðu félags- og atvinnumála á landsvísu vegna faraldursins og fylgja eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar er þetta varðar.

Frá því faraldurinn hófst hefur Velferðarvaktin fengið stöðuskýrslur teymanna og fundað reglulega með þeim til að koma tillögum sínum á framfæri og til að fá upplýsingar frá stjórnvöldum og fleirum um hver staðan er á hverjum tíma. Þá hafa fulltrúar í Velferðarvaktinni komið ábendingum sínum á framfæri á fundunum og í gegnum  netfangið [email protected]. Á þennan hátt hefur Velferðarvaktin átt beint samtal við stjórnvöld um hluta þeirra mótvægisaðgerða sem gripið hefur verið til.

Upplýsingar um viðbragðsteymi velferðarþjónustu má finna hér

Upplýsingar um uppbyggingarteymi félags- og atvinnumála í kjölfar Covid-19 má finna hér. 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum