Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Bráðabirgðaútgáfa félagsvísa 2021 kynnt

Á fundi Velferðarvaktar þann 13. apríl kynnti  Þórdís Birna Borgarsdóttir, sérfræðingur hjá Hagstofunni, Félagsvísa, 7. útg. apríl 2021, bráðabirgðaútgáfu. Hagstofan geri ráð fyrir að uppfæra útgáfuna á næstu mánuðum þegar tölur úr lífskjararannsókninni 2019 og 2020 verða tilbúnar.

Vísar sýna samfélagslega þróun

Félagsmálaráðuneytið og Hagstofa Íslands hafa frá árinu 2012, að frumkvæði Velferðarvaktarinnar, safnað mælingum undir yfirskriftinni félagsvísar. Markmið vísanna er að auðvelda almenningi og stjórnvöldum að fylgjast með samfélagslegri þróun. Félagsvísum er ætlað að mæla þætti sem eru í eðli sínu mikilvægir fyrir líf fólks og hafa bein áhrif á félagslega velferð þeirra.

Hér má sjá bráðabirgðarútgáfu félagsvísa 2021. 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum