Hoppa yfir valmynd
19.01.2015

Fundur Velferðarvaktarinnar 19. janúar 2015

98. fundur.

Velferðarráðuneytið, Stefnið, mánudagurinn 19. janúar 2015, kl. 13–16.

Viðstödd: Siv Friðleifsdóttir, formaður velferðarvaktarinnar, Salbjörg Bjarnadóttir, tiln. af Embætti landlæknis, Viðar Helgason, tiln. af fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Vilborg Oddsdóttir, tiln. af Hjálparstarfi kirkjunnar, Sólveig Hjaltadóttir, tiln. af Tryggingastofnun ríkisins, Vildís Bergþórsdóttir, tiln. af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lovísa Arnardóttir, tiln. af UNICEF, Guðni Olgeirsson, tiln. af mennta- og menningarmálaráðneytinu, Eðvald Einar Stefánsson, tiln. af umboðsmanni barna, Héðinn Jónsson, tiln. af VIRK starfsendurhæfingarsjóði, Ingigerður Jenný Ingudóttir, tiln. af Heimili og skóla, landssamtökum foreldra, Þórir Guðmundsson, tiln. af Rauða krossinum á Íslandi, Sigurrós Kristinsdóttir, tiln. af ASÍ, Haukur Ingibergsson, tiln. af Landssambandi eldri borgara, Hrannar Jónsson, tiln. af Geðhjálp, María Þ. Hreiðarsdóttir, tiln. af Landssamtökunum Þroskahjálp, Margrét Júlía Rafnsdóttir, tiln. af Barnaheill, Ásta S. Helgadóttir, tiln. af umboðsmanni skuldara, Ellý Alda Þorsteinsdóttir, tiln. af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Anna Rós Jóhannesdóttir, tiln. af félagi fagfólks um fjölskylduráðgjöf, Maria Bongardt, varamaður Claudiu Ashonie Wilson, tiln. af Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, Gyða Hjartardóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, starfsmaður velferðarvaktarinnar.

Forföll: Bragi Skúlason, tiln. af BHM, Garðar Hilmarsson, tiln. af BSRB, Ásgerður Jóna Flosadóttir, tiln. af Fjölskylduhjálp Íslands, Vilhjálmur Bjarnason, tiln. af Hagsmunasamtökum heimilanna, Freydís Jóna Freysteinsdóttir, tiln. af Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, Elín Rósa Finnbogadóttir, tiln. af innanríkisráðuneytinu, Tryggvi Hallgrímsson, tiln. af Jafnréttisstofu, Þórður Á. Hjaltested, tiln. af Kennarasambandi Íslands, Margréti Steinarsdóttir, tiln. af Mannréttindaskrifstofu Íslands, Kristín Þóra Harðardóttir, tiln. af Samtökum atvinnulífsins, Sigþrúður Guðmundsdóttir, tiln. af Samtökum um kvennaathvarf, Hrefna Haraldsdóttir, tiln. af Sjónarhóli – ráðgjafamiðstöð ses, Hrafnhildur Tómasdóttir, tiln. af Vinnumálastofnun, Grétar Pétur Geirsson, tiln. af Öryrkjabandalagi Íslands.

Fundarritari: Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, starfsmaður velferðarvaktarinnar.

Dagskrá:

1.         Kynning á drögum að stöðuskýrslu Velferðarvaktarinnar.

2.         Umræða um tillögur Velferðarvaktarinnar gegn fátækt á Íslandi.

3.         Önnur mál.

 

  1. SF kynnir stöðuskýrslu.
  2. Farið yfir sex tillögur sem lagðar hafa verið fram í drögum að skýrslu Velferðarvaktarinnar um tillögur gegn fátækt á Íslandi.
    1. VH, fulltrúi fjármálaráðuneytisins, óskar eftir því að setja inn texta í inngang skýrslunnar um þann fyrirvara að taka þurfi tillit til stöðu efnhagsmála og opinberra fjármála þegar aðgerðirnar verði metnar. Þó skuli hafa í hug að markmiðið sé að bæta stöðu barna og fjölskyldna sem standa veikast í þjóðfélaginu og því sé því beint til opinberra aðila að unnið verði áfram með þær tillögur sem settar eru fram enda geti þær skilað sér í hagræðingu í stærra samhengi. Það var samþykkt.
    2. Aðrar tillögur í skýrsludrögunum voru samþykktar. Athugasemd hafði borist frá einum fulltrúa Velferðarvaktarinnar í tölvupósti sem ekki komst á fundinn um að barnabætur ættu að vera tekjutengdar en skerðingar minnkaðar. Í drögum að skýrslunni var lagt til að barnabætur væru ekki tekjutengdar. Nokkuð rík samstaða var meðal fundargesta um ótekjutengdar barnabætur. Auk þeirra verði greiddar barnatryggingar fyrir þá sem mælast undir lágetkjumörkum. Tillagan var samþykkt.

Framlögð skjöl:

Drög að skýrslu velferðarvaktarinnar: Tillögur um aðgerðir til að vinna bug á fátækt á Íslandi.

3. Rætt um framkvæmd afhendingar tillagnanna.

Næsti fundur ekki ákveðinn en rætt um að kallað verði til fjölmiðlafundar þegar skýrslan verði gefin út og fulltrúar Velferðarvaktarinnar hvattir til að mæta.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum