Hoppa yfir valmynd
02.06.2004 Innviðaráðuneytið

Breyting á lögum um húsnæðismál

Íbúðalánasjóður
Íbúðalánasjóður

Þann 27. maí sl. var á Alþingi samþykkt breyting á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum. Á grundvelli þessarar lagabreytingar mun fara fram endurskipulagning á verðbréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs sem felur í sér að frá 1. júlí nk. munu verða gefin út íbúðabréf í stað húsbréfa og húsnæðisbréfa.

Markmið laga um húsnæðismál er að tryggja landsmönnum hagkvæmari húsnæðislán í gegnum Íbúðalánasjóð með ódýrari fjármögnun á almennum lánamarkaði. Þessu markmiði á að ná með endurskipulagningu á verðbréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs sem felur í sér að í stað húsbréfa og húsnæðisbréfa verða gefin út íbúðabréf. Endurskipulagning þessi eykur hagkvæmni fjármögnunar, sníður af helstu agnúa sem eru á núverandi útgáfu og skapar grundvöll fyrir traustri verðmyndun á verðbréfamarkaði.

Með þessum breytingum er stefnt að því að bæta hag lántakenda sjóðsins bæði með lægri fjármögnunarkostnaði og minni áhættu í tengslum við fasteignaviðskipti. Frá 1. júlí nk. verða íbúðalán greidd út í peningum og áhrif affalla við sölu verðbréfa verði þar með úr sögunni. Lánin munu bera vexti í samræmi við ávöxtunarkröfu hverju sinni.

Lagabreyting þessi miðar að því að auka seljanleika íbúðabréfa á verðbréfamarkaði en líkur eru á því að ávöxtunarkrafa fjárfesta lækki vegna þessa. Ef svo verður, getur Íbúðalánasjóður lækkað vexti á útlánum sínum til lántakenda. Væntingar eru því um að framangreindar breytingar hafi í för með sér lækkun fjármögnunarkostnaðar lántakenda og dragi úr umsýslukostnaði Íbúðalánasjóðs.

Helstu nýmæli laganna eru:

  • Í stað þess að Íbúðalánasjóður afhendi lántakendum markaðsverðbréf í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, eins og nú tíðkast í húsbréfakerfinu, verða íbúðabréf boðin út á markaði og lántakendur fá andvirði veðbréfsins greitt út í peningum. Kjör lánanna miðast við fjármagnskostnað Íbúðalánasjóðs í heild, þ.e. vaxtakjör sem ráðast af niðurstöðu útboðs íbúðabréfa og fjármagnskjör vegna uppgreiðslna lána Íbúðalánasjóðs. Vaxtaákvörðun mun byggja á vegnu meðaltali þessara tveggja þátta. Að auki kemur álag sem sjóðurinn bætir við, líkt og nú tíðkast við lánveitingar Íbúðalánasjóðs og sölu hans á húsnæðisbréfum. Þetta nýja fyrirkomulag gerir ráð fyrir að vextir af útlánum Íbúðalánasjóðs verði ákvarðaðir eftir hvert útboð og geti þ.a.l. orðið mismunandi á milli tímabila.
  • Í stað þess að Íbúðalánasjóður gefi út tvær tegundir verðbréfa eins og verið hefur, þ.e. húsbréf og húsnæðisbréf, gefur sjóðurinn einungis út eina tegund verðbréfa, íbúðabréf.
  • Íbúðabréf verða verðtryggð jafngreiðslubréf með fjórum endurgreiðslum á ári. Jafngreiðslubréf eru þekkt skuldabréfaform alls staðar í heiminum og ættu því að falla að öllum kerfum sem í dag eru notuð í tengslum við verðbréfaviðskipti. Stefnt er að því að íbúðabréf verði gefin út í fáum flokkum sem verði opnir allan líftímann og verði stórir og því markaðshæfir á alþjóðlegum markaði.
  • Nýtt heiti, ÍLS-veðbréf, kemur í stað núverandi fasteignaveðbréfa sem skiptanleg eru fyrir húsbréf.
  • Til að flýta fyrir að íbúðabréf verði markaðshæf verður eigendum húsbréfa og húsnæðisbréfa boðið að skipta þeim fyrir íbúðabréf og að haldin verði skiptiútboð. Unnið er að útfærslu skiptiútboða og verður útfærslan kynnt síðar. Miðað verði við markaðskjör í skiptum, að teknu tilliti til áhættu útgefandans.
  • Íbúðalánasjóður mun ekki hafa heimild til innköllunar á íbúðabréfum á móti uppgreiddum lánum og er það hluti af þeirri stefnumótun að gera íbúðabréfin eftirsóknarverðari á markaði.


Breytingin tekur gildi 1. júlí 2004, en útboð á íbúðabréfum hefjast eftir birtingu laganna í júní.

Lög um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.



Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum