Hoppa yfir valmynd
20.01.2006 Innviðaráðuneytið

Þjónustusamningur fyrir árið 2006

Í maí 2005 hófst samstarf Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna og Verkalýðs-og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis með undirritun þjónustusamnings 17. maí 2005. Um var að ræða tilraun til nýliðinna áramóta. Samkvæmt samningnum fóru ráðgjafar Ráðgjafarstofu einu sinni í mánuði á fyrirfram ákveðnum dögum til Keflavíkur og tóku viðtöl á skrifstofu VSFK á Hafnargötu 80, Keflavík.  

Á þessu tímabili kom berlega í ljós að þessi aukna þjónusta við Suðurnesjamenn féll í góðan jarðveg og var þjónustan vel nýtt af íbúum sveitarfélagsins. Af þeim sökum var  ákveðið að halda þessu ánægjulega samstarfi áfram og undirrita nýjan þjónustusamning milli sömu aðila. 

Nýr þjónustusamningur er undirritaður 19. janúar 2006. Eins og var samkvæmt fyrri samningi munu ráðgjafar frá Ráðgjafarstofunni á fyrirfram ákveðnum dögum veita endurgjaldslausa ráðgjöf á skrifstofu VSFK. Ráðgjöfinni er einkum ætlað að veita einstaklingum og fjölskyldum í greiðsluerfiðleikum yfirsýn yfir stöðu fjármála sinna og leita leiða til lausnar á greiðsluerfiðleikum.  

Þeir sem telja sig hafa þörf fyrir ráðgjöf þurfa að panta ákveðinn viðtalstíma við ráðgjafa og eru bókanir þegar hafnar í síma 421-5777 á skrifstofu VSFK. Fyrsti viðtalstími ráðgjafa á árinu 2006 verður fimmtudaginn 2. febrúar nk. Þeir sem ekki komast í viðtal er boðið upp á símaviðtal sama dag og ráðgjafinn verður í Keflavík. Unnt er að nálgast umsóknir um ráðgjöf á skrifstofu VSFK og á heimasíðu Ráðgjafarstofu www.rad.is.

Eftirfarandi eru dagsetningar á  komum ráðgjafa til VSFK á árinu 2006: 2. febrúar, 2. mars, 6. apríl, 4. maí, 1. júní, 6. september, 5. október, 2. nóvember, 7. desember. 

Samningurinn gildir út árið 2006 og er óskandi að þessi aukna þjónusta sem Verkalýðs-og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis er að veita einstaklingum og fjölskyldum sem eiga í greiðsluerfiðleikum á sínu starfssvæði komi íbúum sveitarfélagsins til góða eins og sannaðist á nýliðnu ári.



Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum