Hoppa yfir valmynd
08.01.2008 Innviðaráðuneytið

Uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða

Í reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, er við hækkun á tekju- og eignamörkum miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu. Í reglugerðinni er miðað við árlega hækkun neysluverðsvísitölu 1. janúar ár hvert og kveðið á um að félagsmálaráðherra skuli láta reikna viðmiðunarfjárhæðirnar í upphafi hvers árs og birta nýjar fjárhæðir.

Við útreikning á tekju- og eignamörkum er miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu frá 1. janúar 2007 til 1. janúar 2008. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands nemur hækkunin 5,86%.

Frá og með 1. janúar 2008 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, eftirfarandi:

  • Tekjur fyrir einstakling 2.843.000 krónur.
  • Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 476.000 krónur.
  • Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 3.980.000 krónur.
  • Eignamörk verða 3.069.000 krónur.


Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum