Hoppa yfir valmynd
05.01.2009 Innviðaráðuneytið

Uppreiknuð eignamörk vegna húsaleigubóta

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, og 7. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, tekur viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á neysluverðsvísitölu. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands hækkaði neysluverðsvísitalan um 18,13% frá ársbyrjun 2008 til ársbyrjun 2009.

Frá og með 1. janúar 2009 er uppreiknuð viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta 5.505.026 krónur.



Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum