Hoppa yfir valmynd
28.06.2011 Innviðaráðuneytið

110% leiðin – úrræði fyrir yfirveðsett heimili

Vakin er athygli á því að þeir sem vilja óska eftir niðurfærslu veðskulda af íbúðalánum samkvæmt svokallaðri 110% leið þurfa að sækja um það fyrir 1. júlí næstkomandi.  

Frestur til að sækja um niðurfærslu veðskulda samkvæmt samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði rennur út 30. júní næstkomandi.

Í samkomulaginu sem stjórnvöld, Íbúðalánasjóður, Samtök fjármálafyrirtækja, Landssamtök lífeyrissjóða og Drómi hf. gerðu með sér og undirritað var 15. janúar á þessu ári er kveðið á um niðurfærslu veðskulda sem eru umfram 110% af verðmæti fasteignar að gefnum ákveðnum skilyrðum.

Til að uppfylla ákvæði samkomulagsins af hálfu Íbúðalánasjóðs var samþykkt breyting á lögum um húsnæðismál á Alþingi 28. mars 2011.

Niðurfærsla skulda getur numið allt að 4 milljónum króna hjá einstaklingi og allt að 7 milljónum króna hjá einstæðum foreldrum, sambýlisfólki og hjónum.

Lántakar sem eru með veðsetningu umfram 110% af verðmæti fasteignar, þrátt fyrir lækkun veðskulda um 4 eða 7 milljónir króna, geta óskað eftir frekari niðurfærslu. Niðurfærslan getur í heild numið allt að 15 milljónum króna hjá einstaklingum og 30 milljónum króna hjá einstæðum foreldrum, sambýlisfólki og hjónum. Mörk niðurfellingar ráðast af 110% veðsetningarhlutfalli af verðmæti eigna og að greiðslubyrði umsækjanda af lánum, sem samkomulagið tekur til, fari ekki niður fyrir 18% af brúttótekjum.

Allir sem uppfylla skilyrði samkomulagsins eiga rétt á niðurfærslu veðskulda.

Umsóknir um niðurfærslu veðskulda skal senda til þess lánveitanda íbúðaláns sem er á aftasta veðrétti. Sá lánveitandi sem leitað er til skal halda utan um málið gagnvart öðrum lánveitendum.

Nánari upplýsingar um skilyrði og umsóknarferlið má finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs og heimasíðum fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða.

 

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum