Hoppa yfir valmynd
04.02.2012 Innviðaráðuneytið

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar

Fjölbýli
Fjölbýli

Í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og velferðarráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar í febrúar og mars.

Prófnefnd leigumiðlara heldur námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er haldið samkvæmt húsaleigulögum, nr. 36/1994, og reglugerð um leigumiðlun, nr. 675/1994. Þátttöku ber að tilkynna til Endurmenntunar Háskóla Íslands eigi síðar en 14. febrúar næstkomandi.

Samkvæmt húsaleigulögum mega þeir einir reka miðlun um leiguhúsnæði, þ.e. koma á leigusamningi, annast framleigu eða skipti á leiguhúsnæði sem hlotið hafa til þess sérstakt leyfi velferðarráðherra. Til að fá leyfi þarf að ljúka námskeiði og prófi. Lögfræðingar eru undanþegnir námskeiði og próftöku.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum