Hoppa yfir valmynd
11.03.2013 Innviðaráðuneytið

Tekju- og eignamörk vegna lánveitinga til leiguíbúða 2013

Húsin í bænum
Húsin í bænum

Í reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, er mælt fyrir um að tekju- og eignamörk samkvæmt reglugerðinni taki breytingum samkvæmt breytingum á vísitölu neysluverðs 1. janúar ár hvert. Jafnframt er mælt fyrir um að velferðarráðherra láti árlega reikna út og birta nýjar fjárhæðir.

Við útreikning á tekju- og eignamörkum er miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu frá ársbyrjun 2012 til ársbyrjunar 2013. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands nemur hækkunin 4,2%.

Frá og með 1. janúar 2013 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, eftirfarandi:

  • Tekjur fyrir einstakling 4.057.000 kr.
  • Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 679.000 kr.
  • Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 5.681.000 kr.
  • Eignamörk 4.379.000. kr.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum