Hoppa yfir valmynd
21.01.2015 Innviðaráðuneytið

Ársskýrsla Leigjendaaðstoðarinnar 2014

Húsin í bænum
Húsin í bænum

Leigjendaaðstoðin sem Neytendasamtökin reka samkvæmt þjónustusamningi við velferðarráðuneytið hefur birt ársskýrslu um starfsemi sína árið 2014. Alls bárust 2.017 erindi sem flest snerust um ástand og viðhald leiguhúsnæðis og uppsögn leigusamnings.

Neytendasamtökin hafa rekið Leigjendaaðstoðina samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið frá árinu 2011. Samningurinn var nýlega framlengdur og gildir til loka árs 2015. Í ársskýrslu Leigjendaaðstoðarinnar má sjá tölfræðilegar upplýsingar um erindi sem bárust á liðnu ári auk upplýsinga um önnur verkefni sem Leigjendaaðstoðin sinnir. Í skýrslunni eru einnig birt nokkur dæmi um algengar spurningar frá leigjendum auk dæma um mál sem farið hafa fyrir kærunefnd húsamála.

Leigjendaaðstoðin heldur úti vefsíðunni leigjendur.is þar sem birtur er ýmis fróðleikur um réttindi og skyldur leigjenda auk erinda og umsagna sem Leigjendaaðstoðin sendir frá sér. Þá er í skýrslunni að finna nokkur dæmi um algengar spurningar frá leigjendum auk dæma um mál sem farið hafa fyrir kærunefnd húsamála.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum