Hoppa yfir valmynd
06.01.2016 Innviðaráðuneytið

Breytingar á viðmiðunarfjárhæð eignamarka vegna húsaleigubóta 

Reykjavík
Reykjavík

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, og 7. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, tekur viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta breytingum hinn 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands hækkaði vísitalan um 2% frá ársbyrjun 2015 til ársbyrjunar 2016.

Frá og með 1. janúar 2016 er uppreiknuð viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta 7.124.000 kr.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum