Hoppa yfir valmynd
30.04.2018 Innviðaráðuneytið

Endurskoðaðar áætlanir um úthlutanir til sveitarfélaga árið 2018

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaðar áætlanir um úthlutanir framlaga til sveitarfélaga á árinu 2018. Að tillögu nefndarinnar nemur áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár 9.225 m.kr. og áætluð heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla í ár 8.260 m.kr.

Útgjaldajöfnunarframlög

Farið hefur fram endurskoðun á áætlaðri úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2018, skv. 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 960/2010. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi og íbúafjölda í sveitarfélögum 1. janúar 2018.

Að tillögu ráðgjafarnefndar nemur áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár 9.225 m.kr. Þar af nema framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli 575 m.kr. Í desember koma til úthlutunar og greiðslu viðbótarframlög að fjárhæð allt að 175 m.kr. vegna íþyngjandi kostnaðar sveitarfélaga af skólaakstri úr dreifbýli á árinu 2018 umfram tekjur.  Uppgjör framlaganna fer fram í desember.

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Farið hefur fram endurskoðun á áætlaðri úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla fyrir árið 2018, skv. 3. gr. reglugerðar um jöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla nr. 351/2002. Við  endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna ársins 2016 og áætlun um útsvarstekjur sveitarfélaga á árinu 2017. Jafnframt var áætlunin uppfærð hvað varðar fjölda íbúa á grunnskólaaldri í hverju sveitarfélagi 1. janúar 2018.

Að tillögu ráðgjafarnefndar nemur áætluð heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla í ár 8.260 m.kr. Þar af eru leiðréttingar á framlögum ársins 2016 að fjárhæð 60 m.kr.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum