Hoppa yfir valmynd
30.08.2018 Innviðaráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir um framlög úr stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða, sbr. aðgerð C.1 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Sérstök áhersla verður lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf og verða verkefni sem hafa varanleg og veruleg jákvæð áhrif á þróun byggðar og búsetu sett í forgang.

Landshlutasamtök sveitarfélaga f.h. sóknaráætlanasvæða geta sótt um þau framlög sem í boði eru, en alls verða allt að 120 milljónum króna veittar til sértækra verkefna svæðanna. Skipuð hefur verið þriggja manna valnefnd sem gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Valnefndina skipa þau Stefanía Traustadóttir, formaður, Elín Gróa Karlsdóttir og Magnús Karel Hannesson. Byggðastofnun annast umsýslu umsókna um framlög fyrir hönd ráðuneytisins, veitir umsóknum viðtöku og gefur valnefnd umsagnir. Umsóknarfrestur er til miðnættis 30. september 2018.

Fleiri samkeppnisframlög verða veitt á grundvelli einstakra aðgerða byggðaáætlunar á gildistíma hennar. Má þar nefna framlög vegna verkefna á sviði almenningssamgangna, verslunar í strjálbýli og fjarvinnslustöðva. Opnað verður fyrir umsóknir vegna þeirra aðgerða á næstu vikum.

Framangreindar auglýsingar byggjast á nýsamþykktum reglum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um úthlutun á framlögum sem veitt eru til verkefna á grundvelli byggðaáætlunar. Er reglunum ætlað að tryggja að gætt sé jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun og umsýslu styrkja og framlaga úr byggðaáætlun. Reglurnar kveða meðal annars á um að ráðherra upplýsi árlega um skiptingu fjárheimilda til byggðaáætlunar og annarra byggðatengdra verkefna. Þá fjalla reglurnar um hvernig standa skuli á auglýsingum um styrki og framlög, úthlutunarskilmálum og annarri framkvæmd styrkveitinga.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum