Hoppa yfir valmynd
19.12.2018 Innviðaráðuneytið

​Ásmundur Einar fundaði með Peter Eriksson ráðherra húsnæðismála í Svíþjóð í dag

Ásmundur Einar ásamt Peter Eriksson - myndVelferðarráðuneytið

Ásmundur Einar Daðason, félags-og jafnréttismálaráðherra, átti fund í dag með Peter Eriksson, ráðherra húsnæðismála og stafrænnar þróunar í Svíþjóð og Anders Gertsen, skrifstofustjóra hjá Norrænu ráðherranefndinni. Á sameiginlegum fundi húsnæðismálaráðherra Norðurlanda fyrr á þessu ári samþykktu löndin að hefja vinnu við samræmingu byggingarreglna. Ísland mun taka við formennsku í Norrænu ráðherranefndarinnar á næsta ári og kemur það í hlut Íslands að fylgja þessu verki eftir.

Á fundinum í dag var farið yfir stöðu þessa verkefnis og þá vinnu sem sænska Húnsæðismálastofnunin Boværket hefur unnið að. Ásmundur ræddi sérstaklega aukið formlegt samstarf við Svía varðandi einföldun regluverks og sagði frá því að um áramót muni Mannvirkjastofnun og þar með regluverk í byggingariðnaði flytjast til félagsmálaráðuneytis. Í framhaldi af því sé ráðgert að einfalda m.a. byggingarreglugerðina og að í því sambandi verði horft til Svíþjóðar.

Ásmundur Einar Daðason segir að mikilvægt sé fyrir íslenskan húsnæðismarkað að einfalda og samræma byggingareglur til að draga úr kostnaði og auka skilvirkni byggingariðnaðarins.

„Við munum strax í byrjun nýs árs hefja vinnu við einföldun byggingarreglna m.a. með það að markmiði að ná niður kostnaði við nýbyggingar og samræma þær betur að nágrönnum okkar. Þetta er mikilvæg vinna og ég er ánægður með að tekið hafi verið vel í samstarf og við munum setja okkur í samband við sænsku húsnæðisstofnunina Boverket strax í Janúar“. Sagði Ásmundur Einar að loknum fundinum í dag.

Ásmundur lagði einnig áherslu á húsnæðisvanda ungs fólks á Norðurlöndunum og stöðu húsnæðismála í dreifbýli og að þau mál yrðu einnig til umfjöllunar á norrænum fundi ráðherra húsnæðismála á næsta ári. Fram kom að sameiginlegur vilji er til að efla stafræna þróun í stjórnsýslu byggingamála.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum