Sýnishorn - Uppsögn leigjanda á ótímabundnum leigusamningi
Sýnishorn nr. 1:
Uppsögn leigjanda á ótímabundnum leigusamningi.
Páll Pálsson
Skólavörðustíg 199
101 Reykjavík
UPPSÖGN LEIGJANDA Á ÓTÍMABUNDNUM LEIGUSAMNINGI
- Ég undirritaður, Jón Jónsson, leigjandi samkvæmt ótímabundnum leigusamningi, dags. 15. maí 1996, um leiguhúsnæðið Ingólfstorg 50, Reykjavík, segi yður, Páli Pálssyni, leigusala samkvæmt samningnum, hér með upp samningnum með lögboðnum fyrirvara. Uppsagnarfrestur er 6 mánuðir samkvæmt 2. tölulið 56. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994.*
- Uppsagnarfrestur telst hefjast fyrsta dag næsta mánaðar eftir að uppsögn þessi er send, þ.e. hinn 1. nóvember 1998 og lýkur því hinn 30. apríl 1999, sbr. 1. mgr. 57. gr. húsaleigulaga.
Reykjavík, 10. október 1998.
Virðingarfyllst,
___________________________
Jón Jónsson, kt. 090965-5559
Ingólfstorgi 50
------------------------------------------------
* Lengd uppsagnarfrests er háð tegund leiguhúsnæðis og lengd leigutíma, sbr. 56. húsaleigulaga nr. 36/1994, auk þess sem unnt er, að ákveðnu marki, að semja á annan veg, sbr. 2. gr. laganna. Sjá nánari upplýsingar á bakhlið.
Til upplýsingar fyrir leigjanda
1. Uppsagnarfrestur ótímabundins leigusamnings skal, skv. 56. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994, vera:
- Einn mánuður af beggja hálfu á einstökum herbergjum, geymsluskúrum og þess háttar húsnæði til hvers sem það er notað.
- Sex mánuðir af beggja hálfu á íbúðum, en íbúð telst hvert það húsnæði þar sem fjölskylda getur haft venjulega heimilisaðstöðu. Hafi leigjandi haft íbúð á leigu lengur en fimm ár skal uppsagnarfrestur af hálfu leigusala vera eitt ár.
- Sex mánuðir af beggja hálfu á atvinnuhúsnæði fyrstu fimm ár leigutímans, níu mánuðir næstu fimm ár og síðan eitt ár eftir tíu ára leigutíma.
Almennt er ekki unnt að semja um styttri uppsagnarfrest af hálfu leigusala en mælt er fyrir um hér að ofan. Þó ber þess að geta að lögin eru frávíkjanleg hvað atvinnuhúsnæði varðar, sbr. 2. gr. húsaleigulaga.
2. Lengd uppsagnarfrests ræðst af leigutíma. Miðað við þann tíma sem liðinn er þegar uppsögn er send, sbr. 2. mgr. 57. gr. húsaleigulaga.
3. Uppsögn þessi skal send með sannanlegum og tryggilegum hætti, til dæmis í ábyrgðarpósti eða símskeyti. Sé þess gætt þá hefur uppsögnin þá þýðingu og þau réttaráhrif sem henni er ætlað að hafa, jafnvel þótt hún komi afbökuð, of seint eða alls ekki til viðtakanda, sbr. 13. gr. húsaleigulaga.
4. Öðru hjóna er óheimilt án skriflegs samþykkis hins að segja upp leigusamningi um húsnæði sem ætlað er til bústaðar fyrir fjölskylduna eða til nota við atvinnurekstur beggja eða annars, svo og framleigu slíks húsnæðis, sbr. 1. mgr. 60. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993.
5. Rýming og frágangur hins leigða. Leigjandi skal hafa lokið rýmingu og frágangi hins leigða eigi síðar en kl. 13.00 næsta dag eftir að uppsagnarfresti lauk, sbr. 1. mgr. 57. gr. húsaleigulaga.
6. Upplýsingar. Áður en leigjandi flytur úr húsnæðinu skal hann gefa leigusala upp það heimilisfang sem erindi og tilkynningar, er leigusali getur þurft að koma til hans, má og skal senda til, sbr. 68. gr. húsaleigulaga.
Gildissvið húsaleigulaga
- Gildissvið húsaleigulaga
- Leigusamningar, leigutími og forgangsréttur leigjenda
- Ástand leiguhúsnæðis
- Viðhald leiguhúsnæðis
- Afnot leiguhúsnæðis, breytingar og endurbætur, sala og framsal
- Uppsögn og riftun
- Fjárhæð húsaleigu, greiðslur, tryggingar og reksturskostnaður
- Skil leiguhúsnæðis, úttekt, leigumiðlun og skattlagning leigutekna
- Undanþágur fyrir lögaðila sem ekki eru reknir í hagnaðarskyni
- Samantekt á helstu atriðum húsaleigulaga
Eyðublöð
Húsaleigusamningar - form
- Húsaleigusamningur um íbúðarhúsnæði (uppfært 24.06.2016)
- Húsaleigusamningur um atvinnuhúsnæði
- Húsaleigusamningur á ensku (uppfært 24.06.2016)
- Húsaleigusamningur á pólsku (uppfært 17.07.2016)
Úttekt á húsnæði
Eyðublöð
Húsaleigusamningar - form
- Húsaleigusamningur um íbúðarhúsnæði (uppfært 12.11.2020)
- Húsaleigusamningur um atvinnuhúsnæði
- Húsaleigusamningur á ensku (uppfært 12.11.2020)
- Húsaleigusamningur á pólsku (uppfært 12.11.2020)
- Húsaleigusamningur á úkraínsku (uppfært 4.3.2022)
Úttekt á húsnæði
Húsaleigumál
Sjá einnig:
Lög
Reglugerðir
Stofnanir
Úrskurðarnefndir
Áhugavert
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.