Hoppa yfir valmynd

Listabókstafir

Úthlutun listabókstafa og heiti nýrra stjórnmálasamtaka

Dómsmálaráðuneytið tekur ákvörðun um bókstaf nýrra stjórnmálasamtaka samkvæmt að fenginni umsókn þeirra og með hliðsjón af listabókstöfum annarra stjórnmálasamtaka í undangengnum kosningum.

Leiðbeiningar um listabókstafi er að finna í 37. gr. a. laga um kosningar til Alþingis VII. kafla laganna er fjallar um framboð. Í 1. mgr. 37. gr. a. kemur fram að ráðuneytið skuli halda skrá um listabókstafi þeirra stjórnmálasamtaka sem buðu fram lista við síðustu alþingiskosningar og birta skrána opinberlega með auglýsingu. Einnig skal auglýsa viðbætur við skrána þegar nýjum listabókstöfum er úthlutað.

Eftir birtingu ofangreindrar auglýsingar hefur eftirfarandi auglýsing verið birt:

Tilkynning landskjörstjórnar um lista sem verða í framboði við alþingiskosningarnar 25. september 2021:

Umsókn um listabókstaf

Hyggist stjórnmálasamtök sem ekki hafa skráðan listabókstaf, bjóða fram lista við komandi alþingiskosningar, skal það tilkynnt dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 7. september 2021. Umsókninni skal fylgja yfirlýsing a.m.k. 300 kjósenda, þar sem mælt er með heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstaf. Yfirlýsingin skal dagsett og skal greina nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili, en meðmælandi skal vera kosningarbær, þ.e. að vera orðinn 18 ára þegar hann skráir sig á meðmælendalista. Rétt er að taka fram að ráðuneytið getur ekki tekið umsókn um listabókstaf til formlegrar meðferðar fyrr en fyrir liggur undirritun 300 kjósenda.

Stjórnmálasamtök geta safnað meðmælum bæði rafrænt og á pappír.

Hægt er að sækja um listabókstaf á Ísland.is og safna þar meðmælum. Við innskráningu skal nota rafræn skilríki. Einnig er hægt að sækja um á pappír og safna meðmælum þannig. Eyðublað sem hægt er nota til að safna undirskriftum, kjósi stjórnmálsamtökin að safna meðmælum á pappír er að finna hér.

Eyðublað: Fyrirmynd meðmælendalista vegna listabókstafs

Heiti nýrra stjórnmálasamtaka má ekki vera þannig að ætla megi að villst verði á því og heiti samtaka sem eru á skrá. Ráðuneytið tilkynnir þeim stjórnmálasamtökum sem eru á skrá ráðuneytisins yfir listabókstafi um beiðnina. Að því loknu tekur ráðuneytið ákvörðun um úthlutunina með hliðsjón af listabókstöfum annarra stjórnmálasamtaka sem eru á skrá yfir samtök sem boðið hafa fram lista í undangengnum alþingiskosningum.

Ekki er gert ráð fyrir að litið sé til þess hvaða listabókstafi stjórnmálasamtök hafa notað í kosningum til sveitarstjórna né heldur að þeim samtökum sem einvörðungu hafa boðið fram lista við sveitarstjórnarkosningar sé tilkynnt um umsóknina.

Þegar litið er til samspils laga um kosningar til Alþingis og laga um kosningar til sveitarstjórna er ljóst að þeim framboðum sem bjóða fram lista við alþingiskosningar er veittur forgangur til listabókstafa umfram þau framboð sem einungis bjóða fram í kosningum til sveitarstjórna. Í því sambandi skal bent á að við kosningar til sveitarstjórna er að jafnaði notast við mun fleiri listabókstafi en við kosningar til Alþingis. Ef litið væri til þess við úthlutun listabókstafa fyrir alþingiskosningar er ljóst að möguleikar nýrra stjórnmálasamtaka til að fá úthlutað listabókstaf fyrir slíkar kosningar væru takmarkaðir umtalsvert.

Ráðuneytið hefur litið svo á, að öllu jöfnu, að aðrir bókstafir en þeir sem fram koma á skrá ráðuneytisins um listabókstafi, teljist lausir. Hins vegar ber að hafa í huga að í kosningum til Alþingis hefur broddstöfum (Á, Í, Ó o.s.frv.) ekki verið úthlutað né heldur bókstöfunum X og Ð, þar sem þeir geta auðveldlega valdið ruglingi og þar með aukið hættu á ógildingu atkvæða – einkum utankjörfundaratkvæða.

Beiðni stjórnmálasamtaka sem ætla að bjóða fram til Alþingis um að breyta heiti sínu.

Óski samtök, sem skráð eru á skrá ráðuneytisins yfir listabókstafi, að breyta heiti sínu skulu þau tilkynna það ráðuneytinu eigi síðar en þremur sólarhringum áður en framboðsfrestur rennur út. Um það gildir það sama og varðandi heiti nýrra stjórnmálasamtaka þ.e. heitið má ekki vera þannig að ætla megi að villst verði á því og heiti samtaka sem eru á skránni.

Síðast uppfært: 15.9.2021
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum