Hoppa yfir valmynd

Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðuneytið kemur að framkvæmd alþingiskosninga með margvíslegum hætti, sbr. lög um kosningar til Alþingis. Ráðuneytið annast m.a. gerð og dreifingu kjörgagna bæði utan kjörfundar og á kjörfundi.

Þóknun

Dómsmálaráðherra ákveður þóknun fyrir störf landskjörstjórnar og yfirkjörstjórna.

Gerðabækur og innsigli

Dómsmálaráðuneytið lætur í té og löggildir gerðabækur landskjörstjórnar og yfirkjörstjórna. Einnig lætur ráðuneytið kjörstjórnum í té embættisinnsigli.

Auglýsing um framlagningu kjörskráa

Dómsmálaráðuneytinu ber að auglýsa framlagningu kjörskráa í fjölmiðlum í síðasta lagi 12 dögum fyrir kjördag. Þar á að koma fram að athugasemdir við kjörskrá skuli senda til hlutaðeigandi sveitarstjórna.

Kjörgögn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Dómsmálaráðuneytið lætur í té kjörgögn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og leiðbeiningar um tilhögun atkvæðagreiðslunnar. Kjörgögn þessi skulu jafnan vera fyrir hendi hjá þeim sem annast atkvæðagreiðsluna, þ.e. hjá sýslumönnum en utanríkisráðuneytið sér um að koma þessum kjörgögnum til kjörstjóra erlendis.
Kjörgögn sem notuð eru við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar eru: Kjörseðill, kjörseðilsumslag, fylgibréf og sendiumslagsvo og stimplar með listabókstöfum.

Kjörgögn fyrir kjörfund á kjördag

Dómsmálaráðuneytið lætur gera kjörseðla sem notaðir verða við alþingiskosningarnar. Kjörseðlar skulu vera úr haldgóðum pappír sem prent eða skrift sést ekki í gegnum, að minnsta kosti 125 g/m² að þyngd.

Kjörseðlana skal brjóta saman þannig að óprentaða hliðin snúi út. Ekki skal fullgera fleiri seðla en þá sem sendir verða undirkjörstjórnum og skal yfirkjörstjórn varast að láta óviðkomandi sjá seðlana áður en hún sendir þá frá sér.

Kjörseðlar skulu að jafnaði fullgerðir eigi síðar en sjö dögum fyrir kjördag og skal dómsmálaráðuneytið þegar senda þá yfirkjörstjórn.

Kosningaleiðbeiningar ásamt sérútgáfu af lögum um kosningar til Alþingis

Dómsmálaráðuneytið lætur kjörstjórnum í té kosningaleiðbeiningar sem hægt er að festa upp í kjörfundarstofu. Þá skal í hverri kjördeild vera til staðar sérprentun sem dómsmálaráðuneytið gefur út með lögum um kosningar til Alþingis ásamt skýringum ef þurfa þykir.

Geymsla kjörskráa

Yfirkjörstjórn skal búa um allar kjörskrár í innsigluðum umbúðum og senda dómsmálaráðuneytinu sem geymir þær í eitt ár, en að því búnu skal eyða þeim.

Síðast uppfært: 13.8.2021
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum