Hoppa yfir valmynd

Sýslumenn

Atkvæðagreiðsla hjá sýslumönnum

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst föstudaginn 13. ágúst 2021. Innanlands fer hún fram hjá sýslumönnum. Upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hjá sýslumönnum er hægt að nálgast hér: 

Sýslumenn geta ákveðið að atkvæðagreiðsla skuli fara fram á aðalskrifstofu þeirra eða í útibúi. Þá getur sýslumaður ákveðið að atkvæðagreiðsla á aðsetri embættis fari fram á sérstökum kjörstað utan aðalskrifstofunnar, svo og að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stað í umdæmi hans. Einnig ákveður hann hverjir skulu vera kjörstjórar og ræður aðra trúnaðarmenn til þeirra starfa.

Framkvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á stofnunum, í fangelsum, í heimahúsi og svo framvegis

Kjósanda sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, eða er heimilismaður á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlað fólk, er heimilt að greiða atkvæði þar. Með sama hætti fer um vistmenn í fangelsi. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Hún má þó ekki fara fram fyrr en þremur vikum fyrir kjördag.
Þá sjá sýslumenn um framkvæmd utankjörfundarkosninga í heimahúsum en kjósanda sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, samanber framangreint. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en þremur vikum fyrir kjördag. Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi verður að bera fram við hlutaðeigandi sýslumann eigi síðar en tveimur dögum fyrir kjördag.

Síðast uppfært: 4.10.2021
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum