Reykjavíkurkjördæmi suður
Mörk Reykjavíkurkjördæmanna fyrir alþingiskosningar árið 2021 eru:
Mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður skulu dregin um miðlínu eftirfarandi gatna frá vestri til austurs: Eftir Hringbraut (frá Ánanaustum), gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegi að Víkurvegi. Þaðan skulu mörkin dregin eftir Víkurvegi til austurs að Reynisvatnsvegi, í austur að Jónsgeisla og eftir Jónsgeisla að Krosstorgi (ISN93 hnit: 366173, 405513). Frá Krosstorgi eru mörkin dregin austur um miðlínu Gvendargeisla og Biskupsgötu að Reynisvatnsvegi. Frá gatnamótum Biskupsgötu og Reynisvatnsvegar eru mörkin dregin eftir miðlínu Hólmsheiðarvegar allt til móts við Haukdælabraut 66 (ISN93 hnit: 367088, 405485) og þaðan skal dregin bein lína að borgarmörkum (ISN93: hnit 369097, 405485).
Við alþingiskosningarnar 2021 skulu vera 11 þingsæti í Reykjavíkurkjördæmi suður, 9 kjördæmissæti og 2 jöfnunarsæti.
Kjördæmi og kjörstaðir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.