Hoppa yfir valmynd

Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðuneytið kemur að framkvæmd forsetakjörs með margvíslegum hætti, sbr. lög um framboð og kjör forseta Íslands og lög um kosningar til Alþingis. Ráðuneytið annast m.a. gerð og dreifingu kjörgagna bæði utan kjörfundar og á kjörfundi. Aftur á móti auglýsir forsætisráðherra kjördag og verður hann laugardaginn 27. júní 2020.

Um framboð til forseta Íslands

Sjá nánar leiðbeiningar fyrir framboð hér. 

Kjörstjórnir

Ákveða þóknun
Dómsmálaráðherra ákveður þóknun fyrir störf landskjörstjórnar og yfirkjörstjórna.

Gerðabækur og innsigli
Dómsmálaráðuneytið lætur í té og löggildir gerðabækur landskjörstjórnar og yfirkjörstjórna. Einnig lætur ráðuneytið kjörstjórnum í té embættisinnsigli.

Kjörskrár

Auglýsing um framlagningu kjörskráa
Dómsmálaráðuneytinu ber að auglýsa framlagningu kjörskráa í fjölmiðlum í síðasta lagi 12 dögum fyrir kjördag. Þar á að koma fram að athugasemdir við kjörskrá skuli senda til hlutaðeigandi sveitarstjórna.

Kjörgögn

Kjörgögn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
Dómsmálaráðuneytið lætur í té kjörgögn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og leiðbeiningar um tilhögun atkvæðagreiðslunnar. Kjörgögn þessi skulu vera fyrir hendi hjá þeim sem annast atkvæðagreiðsluna, þ.e. hjá sýslumönnum og skipstjórum en utanríkisráðuneytið sér um að koma þessum kjörgögnum til kjörstjóra erlendis.

Kjörgögn sem notuð eru við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar eru: kjörseðill, kjörseðilsumslag, fylgibréf og sendiumslag.

Kjörgögn fyrir kjörfund á kjördag
Dómsmálaráðuneytið lætur gera kjörseðla sem notaðir verða við forsetakjörið. Kjörseðlar skulu vera úr haldgóðum pappír sem prent eða skrift sést ekki í gegnum, a.m.k. 125 g/m² að þyngd.

Kjörseðlana skal brjóta saman þannig að óprentaða hliðin snúi út. Ekki skal fullgera fleiri seðla en þá sem sendir verða undirkjörstjórnum og skal yfirkjörstjórn varast að láta óviðkomandi sjá seðlana áður en hún sendir þá frá sér.

Kjörseðlar skulu að jafnaði fullgerðir eigi síðar en sjö dögum fyrir kjördag laugardaginn 20. júní 2020 og skal dómsmálaráðuneytið þá senda þá til yfirkjörstjórna.

Stærð og gerð atkvæðakassa
Dómsmálaráðherra setur nánari reglur um stærð og gerð atkvæðakassa en í kjörfundarstofu skal vera hæfilega stór atkvæðakassi sem sveitarstjórn leggur til. Atkvæðakassinn skal þannig búinn að ekki sé unnt að ná kjörseðli úr honum án þess að opna hann og þannig að unnt sé að læsa honum.

Atkvæðagreiðsla á kjörfundi

Kosningaleiðbeiningar ásamt sérútgáfu af lögum um kosningar til Alþingis
Dómsmálaráðuneytið lætur kjörstjórnum í té kosningaleiðbeiningar sem hægt er að festa upp í kjörfundarstofu. Þá skal í hverri kjördeild vera til staðar sérprentun sem dómsmálaráðuneytið gefur út með lögum um framboð og kjör forseta Íslands, lögum um kosningar til Alþingis og stjórnarskránni ásamt skýringum ef þurfa þykir.

Kosningaúrslit og talning

Að lokinni talningu atkvæða sendir yfirkjörstjórn Hæstarétti Íslands eftirrit af gerðabók sinni ásamt þeim kjörseðlum sem ágreiningur hefur verið um. Þegar Hæstiréttur hefur fengið í hendur eftirrit gerðabóka allra yfirkjörstjórna og ágreiningsseðla, boðar hann forsetaefni eða umboðsmenn þeirra til fundar,  þar sem rétturinn úrskurðar um gildi ágreiningsseðlanna, lýsir úrslitum kosninganna og gefur út kjörbréf handa því forsetaefni, sem hæstri atkvæðatölu hefur náð. Staðfest eftirrit af kjörbréfi forsetra sendir Hæstiréttur forsætisráðherra og forseta Alþingis.

Geymsla kjörskráa
Yfirkjörstjórn skal búa um allar kjörskrár í innsigluðum umbúðum og senda dómsmálaráðuneytinu sem geymir þær í eitt ár, en að því búnu skal eyða þeim.

Síðast uppfært: 22.6.2020
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum