Hoppa yfir valmynd

Þjóðskrá Íslands

Þjóðskrá Íslands sér um gerð kjörskrárstofna fyrir forsetakosningarnar, en á kjörskrárstofni eru allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og með lögheimili á Íslandi. Enn fremur eru á kjörskrárstofni þeir íslenskir ríkisborgarar, sem lögheimili eiga erlendis en eiga kosningarrétt samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis. 

Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt við forsetakosningar og eru því ekki á kjörskrá. Eina undantekningin eru danskir ríkisborgarar, sem eiga kosningarétt samkvæmt lögum nr. 85/1946, þ.e. þeir sem voru búsettir á Íslandi 6. mars 1946 eða á síðustu 10 árum fyrir þann tíma.

Sveitarstjórnir leggja fram kjörskrár á grundvelli kjörskrárstofna frá Þjóðskrá Íslands. Á kjörskrá skal taka alla þá sem kosningarrétt eiga í viðkomandi kosningum og er skráning á kjörskrá skilyrði þess að fá að greiða atkvæði.

Þjóðskrá Íslands sendir sveitarstjórnum kjörskrárstofn fljótlega eftir viðmiðunardag kjörskrár sem er 6. júní 2020. Kjörskrár skulu lagðar fram eigi síðar en tíu dögum fyrir kjördag, miðvikudaginn 17. júní 2020. Skulu þær liggja frammi á skrifstofum sveitarfélaga eða öðrum hentugum stað á almennum skrifstofutíma til kjördags. Sveitarstjórn skal auglýsa hvar kjörskrá liggur frammi á þann hátt á hverjum stað sem venja er þar að birta opinberar auglýsingar. Kjörskrá skal undirrituð af oddvita sveitarstjórnar eða framkvæmdastjóra hennar.

Kjörskrár miðast við skráð lögheimili í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár Íslands, þremur vikum fyrir kjördag, eða 6. júní 2020. Óheimilt er því að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist Þjóðskrá Íslands fyrir þennan tíma. Breytingar á lögheimili eftir viðmiðunardaginn leiða því ekki til breytinga á kjörskrá. Sveitarstjórn er við samningu kjörskrár þannig bundin við skráningu á íbúaskrá þjóðskrár 6. júní 2020 að því er varðar staðsetningu í sveitarfélag.

Kjörskrár skulu lagðar fram eigi síðar en miðvikudaginn 17. júní 2020. Kjörskrá skal liggja frammi á skrifstofu sveitarfélags eða öðrum hentugum stað á almennum skrifstofutíma til kjördags. Sveitarstjórnir taka þegar til meðferðar athugasemdir er þeim berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar, ef við á.

Síðast uppfært: 22.6.2020
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum