Hoppa yfir valmynd

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur hafist 25. maí 2020 og stendur til kjördags 27. júní 2020. Kosning utan kjörfundar er því aðeins gild að notuð séu hin fyrirskipuðu kjörgögn.

Kjörstaðir vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á eftirfarandi stöðum:

Innanlands: Hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla fari fram á sérstökum kjörstað í umdæminu. Sýslumenn auglýsa hvar og hvenær atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur farið fram. Upplýsingar frá öllum sýslumannsembættum landsins um kjörstaði og afgreiðslutíma vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar má nálgast á vefsíðu sýslumanna.

Erlendis: Á skrifstofu sendiráðs, í sendiræðisskrifstofu eða hjá kjörræðismanni samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur þó ákveðið að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fari fram á öðrum stöðum erlendis. Utanríkisráðuneytið annast afgreiðslu kjörgagna til kjörstjóra erlendis og auglýsir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla geti farið fram. Senda skal atkvæði til sýslumanns eða kjörstjórnar í því umdæmi þar sem kjósandinn telur sig vera á kjörskrá.

Upplýsingar um sendiskrifstofur á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.

Upplýsingar um kjörræðismenn eftir löndum.

Í ljósi þess ástands sem nú ríkir í heiminum vegna COVID-19 farsóttarinnar, geta óhjákvæmilega komið upp þau tilvik, vegna sóttvarnaráðstafana stjórnvalda á hverjum stað, að aðgengi kjósenda að kjörstöðum erlendis verði takmarkað. Kjósendum er bent á að hafa samband við sendiskrifstofur og/eða sendiherra sem hafa yfirlit yfir hvar er unnt að kjósa.

Á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum: Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða er vistmaður þar, eða er heimilismaður á dvalarheimili aldraðra eða á stofnun fyrir fatlað fólk, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni/heimilinu. Hið sama gildir um fangelsi og vistmenn þeirra. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Hún má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi þremur vikum fyrir kjördag, þ.e. 6. júní 2020.

Um tímasetningar vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á sjúkrahúsum, í fangelsi og á dvalarheimilum aldraðra sjá vef sýslumanna.

Leiðbeiningar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra o.fl.

Í heimahúsi: Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, samanber framangreint. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi þremur vikum fyrir kjördag, þ.e. 6. júní 2020, en ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi verður að bera fram við hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en fjórum dögum fyrir kjördag, þ.e. 23. júní 2020, fyrir klukkan 16.

Leiðbeiningar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra o.fl.

Umsóknareyðublað um að fá að greiða atkvæði í heimahúsi.

Um borð í íslensku skipi: Kjósandi, sem er í áhöfn eða farþegi um borð í íslensku skipi í siglingum erlendis eða á fjarlægum miðum, má kjósa um borð í skipinu. Skipstjóri eða sá sem hann tilnefnir skal vera kjörstjóri.

Hvernig fer kosning fram utan kjörfundar?

Kjósandi, sem greiða vill atkvæði utan kjörfundar, skal gera kjörstjóra grein fyrir sér, svo sem með því að framvísa skilríkjum (t.d. ökuskírteini eða vegabréfi) eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra. Að því búnu fær kjósandi afhent kjörgögn sem eru kjörseðill, kjörseðilsumslag, fylgibréf og sendiumslag.

Á kjörseðli við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar eru ekki nöfn frambjóðenda, heldur er kjörseðillinn auður. Kjósandi skal aðstoðarlaust og án þess að nokkur annar sjái, rita eða stimpla á kjörseðilinn fullt nafn þess frambjóðanda sem hann vill kjósa.

Eftir að kjósandi hefur ritað atkvæði sitt á kjörseðilinn leggur hann kjörseðilinn í kjörseðilsumslagið og límir það aftur.

Því næst fyllir kjósandi út fylgibréfið og undirritar það í viðurvist kjörstjóra sem vottar atkvæðagreiðsluna.

Kjósandi leggur síðan fylgibréfið og kjörseðilsumslagið í sendiumslagið, límir það aftur og áritar það til sýslumannsins eða kjörstjórnarinnar í því umdæmi þar sem hann telur sig vera á kjörskrá. Loks ritar kjósandi nafn sitt, kennitölu og lögheimili greinilega á bakhlið sendiumslagsins. Vilji kjósandi ekki að nafn hans, kennitala og lögheimili sé sýnilegt öðrum er honum heimilt að setja sendiumslagið ofan í annað umslag og merkja það viðkomandi sýslumanni eða kjörstjórn.

Kjósandi annast sjálfur og kostar sendingu atkvæðisbréfs síns. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst. Kjósandi sem greiðir atkvæði hjá sýslumanni í sveitarfélagi þar sem hann er á kjörskrá getur lagt bréfið í atkvæðakassa þar.

Myndband með leiðbeiningum um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Kjósandi þarf aðstoð við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Ef kjósandi skýrir kjörstjóra svo frá að hann sé ekki fær um að árita kjörseðilinn á fyrirskipaðan hátt eða árita og undirrita fylgibréfið sakir sjónleysis eða þess að honum sé hönd ónothæf skal kjörstjóri veita honum aðstoð til þess í einrúmi, enda er hann bundinn þagnarheiti um að segja ekki frá því sem þeim fer þar á milli. Um aðstoðina og ástæðu hennar skal geta á fylgibréfinu. Aðstoð við að árita kjörseðil skal því aðeins veitt að kjósandi geti sjálfur skýrt þeim er aðstoðina veitir ótvírætt frá því hvernig hann vill greiða atkvæði sitt. Óheimilt er að bjóða að fyrra bragði þeim aðstoð er þannig þarfnast hjálpar.

Kjósandi sem er í framangreindri stöðu getur einnig óskað eftir því að í stað kjörstjóra aðstoði hann fulltrúi sem hann hefur valið sjálfur. Kjörstjóri skal þá gera hlé á atkvæðagreiðslunni þar til aðrir kjósendur, sem kunna að vera viðstaddir, hafa lokið við að greiða atkvæði og skal fulltrúi kjósandans jafnframt víkja frá. Kjörstjóri tekur beiðni kjósanda strax til úrskurðar og er ákvörðun hans endanleg.

Kjörstjóri skal heimila fulltrúanum að aðstoða kjósandann við atkvæðagreiðsluna geti kjósandi sjálfur með skýrum hætti tjáð kjörstjóra vilja sinn óþvingað um að hann óski aðstoðar fulltrúans. Þó kjósandi geti ekki sjálfur með skýrum hætti tjáð kjörstjóra þennan vilja sinn skal kjörstjóri þó heimila fulltrúanum að aðstoða kjósandann við atkvæðagreiðsluna leggi kjósandinn fram vottorð réttindagæslumanns, sem starfar samkvæmt lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, þar sem staðfest er að kjósandinn hafi valið sjálfur þennan tiltekna fulltrúa sér til aðstoðar við atkvæðagreiðsluna.

Hægt er að nálgast lista yfir réttindagæslumenn fyrir fatlað fólk á eftirfarandi vefslóð: https://www.stjornarradid.is/gaeda-og-eftirlitsstofnun/rettindagaesla-fyrir-fatlad-folk/

Vottorð réttindagæslumanna.

Uppfylli kjósandi ekki framangreind skilyrði verður ekki af atkvæðagreiðslu með þessum hætti. Heimili kjörstjóri fulltrúa kjósanda að aðstoða kjósandann við atkvæðagreiðsluna skal atkvæðagreiðslu haldið áfram og aðstoðarinnar getið á fylgibréfinu. Fulltrúi kjósanda er bundinn þagnarheiti um að segja ekki frá því sem honum og kjósanda fer á milli við atkvæðagreiðsluna. Í því skyni staðfestir hann heit sitt áður en atkvæði er greitt með undirritun á sérstakt eyðublað. Aðeins er heimilt að vera fulltrúi eins kjósanda við sömu kosningu.

Þagnarheit fulltrúa við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.

Hvernig fer með atkvæðið?

Ef atkvæði er greitt hjá kjörstjóra í umdæmi þar sem kjósandi er á kjörskrá þá getur hann skilið atkvæðabréfið þar eftir og látið það sjálfur í atkvæðakassa sem er á kjörstað. Atkvæðakassinn skal innsiglaður af kjörstjóra ásamt hlutaðeigandi kjörstjórn.

Ef atkvæði er greitt hjá kjörstjóra í öðru umdæmi en því sem kjósandi er á kjörskrá, þá annast og kostar hann sjálfur sendingu atkvæðisbréfs síns. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst en kjósandi kostar sjálfur sendinguna.

Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandi er á kjörskrá.

Utankjörfundaratkvæði skal vera komið í hendur kjörstjórnar fyrir lok kjörfundar á kjördag svo að hægt sé að taka það til greina við kosninguna.

Sá sem tekur að sér að koma bréfinu með utankjörfundaratkvæðinu í kjördeild má afhenda það kjörstjórninni í kjördæmi kjósanda.

Sending atkvæða sem greidd eru utan kjörfundar erlendis. Kjósendur á erlendri grundu bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæðum sínum til skila á Íslandi. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst en kjósandi kostar sjálfur sendinguna. Senda skal atkvæði til sýslumanns eða kjörstjórnar í því umdæmi þar sem kjósandinn telur sig vera á kjörskrá. Sendiumslagið skal merkja viðkomandi sýslumanni eða kjörstjórn og á bakhlið umslagsins skal færa inn tilteknar upplýsingar um kjósandann sjálfan. Vilji kjósandi ekki að nafn hans, kennitala og lögheimili á Íslandi sé sýnilegt öðrum er honum heimilt að setja sendiumslagið ofan í annað umslag og merkja það viðkomandi sýslumanni eða kjörstjórn.

Hægt er að senda utankjörfundaratkvæði með pósti eða koma því á einhvern annan hátt í hendur hlutaðeigandi kjörstjórnar en það verður að berast fyrir lok kjörfundar á kjördag svo hægt sé að taka það til greina við kosninguna. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandi er á kjörskrá.

Upplýsingar um sendiskrifstofur á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fyrirgerir ekki rétti manns til að greiða atkvæði á kjördag. Kjósanda er heimilt að greiða atkvæði á kjördag þótt hann hafi greitt atkvæði utan kjörfundar og kemur utankjörfundaratkvæði hans þá ekki til greina við kosninguna.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum