Bundnar hlutfallskosningar og óbundnar kosningar
Óbundnar kosningar og bundnar hlutfallskosningar
Fulltrúar í sveitarstjórnum skulu kjörnir í leynilegum almennum kosningum sem geta verið með tvennu móti þ.e.:
- bundnar hlutfallskosningar þar sem kosning er bundin við framboð á listum og fulltrúar á hverjum lista ná kjöri í hlutfalli við það atkvæðamagn sem listinn fær eða
- óbundnar kosningar þar sem kosning er ekki bundin við framboð en allir kjósendur eru í kjöri nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því. Óbundin kosning fer einungis fram ef enginn framboðslisti kemur fram áður en framboðsfresti lýkur eða ef of fá nöfn eru á framkomnum listum til að sveitarstjórn verði fullskipuð.
Nánar um óbundnar kosningar
Við óbundna kosningu eru allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri með þeirri undantekningu að þeir sem setið hafa í sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur geta skorast undan kjöri, enda tilkynni þeir yfirkjörstjórn það fyrir lok framboðsfrests. Skal yfirkjörstjórn auglýsa með viðeigandi hætti nöfn þeirra sem skorast hafa undan endurkjöri. Öllum öðrum sem eru kjörgengir, heilir og hraustir og yngri en 65 ára, er skylt að taka kjöri í sveitarstjórn við óbundna kosningu.
Kjörseðill við óbundna kosningu er mjög frábrugðinn kjörseðli við bundnar hlutfallskosningar. Kjörseðillinn er tvískiptur. Efri hluti kjörseðils skal ætlaður fyrir nöfn og heimilisföng aðalmanna en neðri hluti hans fyrir nöfn og heimilisföng varamanna. Á neðri hluta kjörseðils skal vera töluröð miðuð við fjölda þeirra sem kjósa á.
Atkvæðagreiðsla fer fram með þeim hætti að kjósandi skrifar á kjörseðilinn fullt nafn og heimilisfang aðalmanna á þann hluta kjörseðilsins sem ætlaður er fyrir kjör aðalmanna.
Á þann hluta seðilsins sem ætlaður er fyrir kjör varamanna skal kjósandi rita nöfn varamanna og heimilisföng þeirra í þeirri röð sem hann kýs að þeir taki sæti allt að þeirri tölu sem kjósa á.
Ekkert er því til fyrirstöðu að kjósandi riti upplýsingar um nöfn og heimilisföng þeirra aðal- og varamanna sem hann hyggst greiða atkvæði á blað sér til minnis og hafi það sér til stuðnings í kjörklefa á meðan hann greiðir atkvæði.
Framkvæmd sveitarstjórnarkosninga 2022
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.