Hvar á ég að kjósa?
Þjóðskrá Íslands hefur opnað fyrir uppflettingu í kjörskrá svo nú geta kjósendur með einföldum hætti kannað hvort og hvar þeir eru skráðir á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí nk.
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Yfirleitt birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi kjörskrár sem var 6. apríl. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.
Sveitarstjórnarkosningar 2022
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.