Samningur milli fjármálaráðh. og BHM um rétt þungaðra kvenna til mæðraskoðunar
Samningur
milli
fjármálaráðherra og Bandalags háskólamanna
um rétt þungaðra kvenna til mæðraskoðunar
Samningur þessi er gerður til að hrinda í framkvæmd ákvæðum 9. gr. tilskipunar ESB frá 19. október 1992, um lögleiðingu ráðstafana til að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir starfsmenn sem eru þungaðir eða hafa nýlega alið eða hafa börn á brjósti (92/85/EBE).
1. gr.
Barnshafandi konur eiga rétt til nauðsynlegra fjarvista frá vinnu vegna mæðraskoðunar án frádráttar á föstum launum þurfi slík skoðun að fara fram í vinnutíma.
2. gr.
Samningur þessi gildir frá undirskriftardegi.
Reykjavík, 13. ágúst 1999
.................................................. .........
F.h. Bandalags háskólamanna
vegna aðildarfélaga þess F.h. fjármálaráðherra
Gísli Tryggvason (sign.) Gunnar Björnsson (sign.)
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.