Hoppa yfir valmynd
28. mars 2014 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

6. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Minnisblöð síðustu funda
    a) Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta
    b) Framsal ríkisvalds í þágu alþjóðasamvinnu
    c) Auðlindir
  3. Umhverfisvernd
  4. Næstu umfjöllunarefni nefndarinnar
  5. Önnur mál

Fundargerð

6. fundur haldinn föstudaginn 14. mars 2014, kl. 9.15, í Þjóðmenningarhúsinu, stofu Jóns Sigurðssonar, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Sigurður Líndal, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir og Skúli Magnússon. Róbert Marshall, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir höfðu boðað forföll.

Freyja Haraldsdóttir hefur sagt sig úr stjórnarskrárnefnd vegna anna við önnur verkefni og Róbert Marshall verið tilnefndur af Bjartri framtíð í hennar stað.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 5. fundar, föstudaginn 28. febrúar 2014, var send nefndarmönnum með tölvupósti 8. mars. Engar athugasemdir komu fram og telst fundargerðin samþykkt.

2. Minnisblöð síðustu funda

a) Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta

Ný útgáfa minnisblaðs (drög nr. 5, dags. 7.3.2014) var send nefndarmönnum 8. mars og óskað eftir skriflegum athugasemdum. Engar athugasemdir bárust eða komu fram á fundinum.

Minnisblaðið (drög nr. 5) mun koma til lokaumfjöllunar nefndarinnar fyrir útgáfu grænbókar/áfangaskýrslu.

b) Framsal ríkisvalds í þágu alþjóðasamvinnu

Ný útgáfa minnisblaðs (drög nr. 3, dags. 7.3.2014) var send nefndarmönnum 8. mars, í kjölfar þess að breytingartillögur bárust frá SM. Engar athugasemdir bárust eða komu fram á fundinum.

Minnisblaðið (drög nr. 3) mun koma til lokaumfjöllunar nefndarinnar fyrir útgáfu grænbókar/áfangaskýrslu.

c) Auðlindir

Minnisblað (drög nr. 2, dags. 8.3.2014) var sent nefndarmönnum 8. mars og óskað eftir skriflegum athugasemdum. Þær athugasemdir sem bárust (KJ) voru sendar nefndarmönnum.

Samþykkt var að gefinn verði athugasemdafrestur til mánudagsins 24. mars. Drög (nr. 3) að uppfærðu minnisblaði verða send út að lokinni úrvinnslu á þeim athugasemdum sem berast.

3. Umhverfisvernd

Minnisblað (drög nr. 1, dags. 26.2.2014) var sent nefndarmönnum 27. febrúar. Umfjöllun um minnisblaðið var frestað á síðasta fundi.

Orðið var gefið laust og rætt efnislega um stjórnarskrárákvæði um umhverfisvernd, með áherslu á eftirfarandi atriði:

  • Stöðumat (fræðileg/pólitísk greining því hvort breytinga(r) er þörf).
  • Sér nefndin fyrir sér miklar breytingar eða litlar? Breytingar í einu lagi eða áföngum? Þarf sérstakt ferli?
  • Framtíðarsýn og markmið við endurskoðun.
  • Helstu leiðir/áherslur að mati nefndarinnar og áhrif þeirra.

Ákveðið var að fela formanni að stýra frekari vinnslu á minnisblaðinu, í samræmi við það sem fram kom í umræðum. Drög (nr. 2) að uppfærðu minnisblaði verða send út að þeirri úrvinnslu lokinni og óskað eftir skriflegum athugasemdum nefndarmanna.

4. Næstu umfjöllunarefni nefndarinnar

Sbr. minnisblað frá 3. fundi, dags. 27. janúar 2014. Samþykkt að miða við þá röð sem þar kemur fram. Í samræmi við það mun embætti forseta Íslands koma til umfjöllunar á næsta fundi.

5. Önnur mál

Ekkert var tekið fyrir undir þessum lið.

Næsti fundur verður haldinn föstudaginn 28. mars, á reglulegum fundartíma og fundarstað nefndarinnar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.40.

SG skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum