Hoppa yfir valmynd
04. júní 2014 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

8. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Umhverfisvernd
  3. Embætti forseta Íslands
  4. Kosningar og kjördæmaskipan
  5. Þing og ríkisstjórn
  6. Önnur mál

Fundargerð

8. fundur – haldinn föstudaginn 25. apríl 2014, kl. 9.15, í Þjóðmenningarhúsinu, stofu Jóns Sigurðssonar, Reykjavík.
Mættir voru eftirtaldir: Aðalheiður Ámundadóttir, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Páll Valur Björnsson, Skúli Magnússon og Valgerður Bjarnadóttir. Sigurður Líndal, formaður, og Valgerður Gunnarsdóttir höfðu boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

Nýr nefndarmaður tilnefndur af Bjartri framtíð, Páll Valur Björnsson, boðinn velkominn til starfa.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 7. fundar, föstudaginn 28. mars 2014, var send nefndarmönnum með tölvupósti 1. apríl. Engar athugasemdir komu fram og telst fundargerðin samþykkt.

2. Umhverfisvernd

Á síðasta fundi nefndarinnar var samþykkt að veita frest til skriflegra athugasemda við fyrirliggjandi drög að minnisblaði um umhverfisvernd (drög nr. 2, dags. 27.3.2014). Athugasemdir bárust frá KJ og voru þær sendar öðrum nefndarmönnum. Uppfært minnisblað á grundvelli þeirra athugasemda (drög nr. 3, dags. 23.4.2014) var sent nefndarmönnum 23. apríl.

Orðið var gefið laust og nefndarmenn ræddu um efni minnisblaðsins.

Minnisblaðið (drög nr. 3, dags. 23.4.2014) mun koma til lokaumfjöllunar nefndarinnar fyrir útgáfu grænbókar/áfangaskýrslu.

3. Embætti forseta Íslands

Haldið áfram umfjöllun sem hófst á síðasta fundi (sbr. grind að hefðbundnu minnisblaði).

Orðið var gefið laust og rætt um stjórnarskrárákvæði varðandi embætti forseta Íslands, með áherslu á eftirfarandi atriði:

  • Stöðumat (fræðileg/pólitísk greining því hvort breytinga(r) er þörf). 
  • Sér nefndin fyrir sér miklar breytingar eða litlar? Breytingar í einu lagi eða áföngum? Þarf sérstakt ferli?
  • Framtíðarsýn og markmið við endurskoðun.

Helstu leiðir/áherslur að mati nefndarinnar og áhrif þeirra.Ákveðið að fela SM að vinna drög að texta sem komi til umfjöllunar á næsta fundi.

4. Kosningar og kjördæmaskipan

Orðið var gefið laust og rætt um stjórnarskrárákvæði varðandi kosningar og kjördæmaskipan, með áherslu á eftirfarandi atriði (sbr. grind að hefðbundnu minnisblaði):

  • Stöðumat (fræðileg/pólitísk greining því hvort breytinga(r) er þörf).
  • Sér nefndin fyrir sér miklar breytingar eða litlar? Breytingar í einu lagi eða áföngum? Þarf sérstakt ferli?
  • Framtíðarsýn og markmið við endurskoðun.
  • Helstu leiðir/áherslur að mati nefndarinnar og áhrif þeirra.

Ákveðið var að kanna möguleika á að efna til almennrar og fræðilegrar umræðu um þessi efni, svo sem með sérstöku málþingi, í samvinnu við forsætisráðuneyti og fleiri aðila.

Frekari umfjöllun frestað.

5. Þing og ríkisstjórn

Umfjöllun frestað.

6. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Næsti fundur verður haldinn föstudaginn 9. maí, á reglulegum fundartíma og fundarstað nefndarinnar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.00.

SG skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum