Hoppa yfir valmynd
02. janúar 2015 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

18. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu
  3. Umhverfisvernd

Fundargerð

18. fundur – haldinn föstudaginn 2. janúar 2015, kl. 10.00, í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Forföll höfðu verið tilkynnt af hálfu Katrínar Jakobsdóttur og Róberts Marshall sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 17. fundar, sem haldinn var föstudaginn 14. nóvember 2014, var send nefndarmönnum með tölvupósti 31. desember. Fundargerðin var samþykkt án athugasemda.

2. Framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu

Rætt var um framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu, sbr. umfjöllun í fyrstu áfangaskýrslu, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og drög send nefndarmönnum.

3. Umhverfisvernd

Rætt var um umhverfisvernd, sbr. umfjöllun í fyrstu áfangaskýrslu, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og drög send nefndarmönnum.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13.10.

SG skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum