Hoppa yfir valmynd
01. júlí 2015 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

28. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Vinna sérfræðingahópa
  3. Önnur mál

Fundargerð

28. fundur – haldinn miðvikudaginn 1. júlí 2015, kl. 8.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, hafði boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 27. fundar, sem haldinn var föstudaginn 26. júní 2015, var send nefndarmönnum með tölvupósti þann 30. júní sl. Umfjöllun um fundargerðina frestað til næsta fundar.

2. Vinna sérfræðingahópa

Fjórði og síðasti sérfræðingahópurinn hefur nú einnig skilað til nefndarinnar texta (sem er þó enn á vinnslustigi, sbr. m.a. fundargerð 27. fundar). Fulltrúar tveggja sérfræðingahópa komu á fund nefndarinnar til að gefa skýringar og svara fyrirspurnum nefndarmanna.

Samþykkt var að á næsta fundi verði haldið áfram umfjöllun um vinnu sérfræðingahópa og fyrirliggjandi textadrög.

3. Önnur mál

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9.45.

SG ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum