Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2015 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

31. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Vinna sérfræðingahópa og áframhaldandi vinna við fyrirliggjandi textadrög
  3. Önnur mál

Fundargerð

31. fundur – haldinn þriðjudaginn 11. ágúst 2015, kl. 16.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir.  

Þá sat fundinn Oddur Þorri Viðarsson, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis. 

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 30. fundar, sem haldinn var miðvikudaginn 5. ágúst 2015, var send nefndarmönnum með tölvupósti þann 10. ágúst sl. Fundargerðin var samþykkt án athugasemda.

2. Vinna sérfræðingahópa og áframhaldandi vinna við fyrirliggjandi textadrög

Farið var yfir frumvarpsdrög sem byggja á texta frá sérfræðingahópum. Helstu breytingatillögur ræddar og fjallað um viðbætur frá sérfræðingahópi um þjóðaratkvæðagreiðslur.

3. Önnur mál

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.30.

OÞV ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum