Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2015 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

32. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög
  3. Önnur mál

Fundargerð

32. fundur haldinn mánudaginn 17. ágúst 2015, kl. 9.30, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Aðalheiður Ámundadóttir hafði boðað forföll.

Þá sat fundinn Oddur Þorri Viðarsson, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 31. fundar, sem haldinn var þriðjudaginn 11. ágúst 2015, var send nefndarmönnum með tölvupósti þann 16. ágúst sl. Fundargerðin var samþykkt án athugasemda.

2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög

Farið var yfir helstu breytingatillögur við tillögur sérfræðingahópa. Ákveðið var að fela sérfræðingahópum um þjóðaratkvæðagreiðslur og þjóðréttarskuldbindingar að meta áhrif tiltekinna orðalagsbreytinga.

3. Önnur mál

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.00.

 OÞV ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum