Hoppa yfir valmynd
21. september 2015 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

35. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög
  3. Önnur mál

Fundargerð

35. fundur – haldinn mánudaginn 21. september 2015, kl. 16.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Katrín Jakobsdóttir, Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir.

Jón Kristjánsson hafði boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 34. fundar, sem haldinn var mánudaginn 7. september 2015, var samþykkt án athugasemda.

2. Vinna við fyrirliggjandi textadrög

Farið var yfir fyrirliggjandi textadrög og rætt um þau atriði sem enn er skoðanamunur um. Formaður mun stýra úrvinnslu á þeim athugasemdum sem fram komu, eftir atvikum í samvinnu við sérfræðingahópa, og leita málamiðlunar.

3. Önnur mál

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19.00.

SG ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum