Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2015 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

42. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Heildardrög að frumvarpi
  3. Önnur mál

Fundargerð

42. fundur – haldinn mánudaginn 30. nóvember 2015, kl. 16.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Einar Hugi Bjarnason, Katrín Jakobsdóttir, Róbert Marshall og Valgerður Bjarnadóttir.

Jón Kristjánsson og Valgerður Gunnarsdóttir höfðu boðað forföll.

Þá sat fundinn Oddur Þorri Viðarsson, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 41. fundar, sem haldinn var föstudaginn 20. nóvember 2015, var samþykkt án athugasemda.

2. Heildardrög að frumvarpi

Fjallað var um stöðu frumvarpsdraga og framhald vinnunnar.

Aagot Vigdís Óskarsdóttir, Aðalheiður Jóhannsdóttir og Kristín Haraldsdóttir komu á fund nefndarinnar kl. 16.30 og svöruðu spurningum nefndarmanna um tillögu sérfræðingahóps að umhverfisákvæði.

Róbert Marshall vék af fundi kl. 17.00.

Aagot Vigdís Óskarsdóttir, Aðalheiður Jóhannsdóttir og Kristín Haraldsdóttir viku af fundi kl. 17.15.

3. Önnur mál

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.30.

OÞV ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum