Hoppa yfir valmynd
17. mars 2016 Fundargerðir stjórnarskrárnefndar 2013-2017

51. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Umsagnir og athugasemdir við frumvarpsdrög nefndarinnar – ákvæði um náttúruauðlindir
  2. Önnur mál

Fundargerð

51. fundur – haldinn fimmtudaginn 17. mars 2016, kl. 15.00, í fundarsal forsætisráðuneytis við Hverfisgötu.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Einar Hugi Bjarnason, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Róbert Marshall sótti fundinn að beiðni Bjartrar framtíðar.

1. Umsagnir og athugasemdir við frumvarpsdrög nefndarinnar – ákvæði um náttúruauðlindir

Lögð voru fram drög að yfirliti með reifun og flokkun á þeim athugasemdum sem fjalla um náttúrauðlindir. Yfirlitið var unnið af Gunnari Páli Baldvinssyni lögfræðingi að beiðni stjórnarskrárnefndar og sent nefndarmönnum 14. mars. Það hefur jafnframt verið til skoðunar hjá viðkomandi sérfræðingahópi stjórnarskrárnefndar. Nefndarmenn ræddu um viðbrögð (úrvinnslu) á umræddum athugasemdum og umsögnum og Aagot Vigdís Óskarsdóttir, sem sæti á í sérfræðingahópnum, kom á fund nefndarinnar til að svara fyrirspurnum.

2. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:00. 

PÞ ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum