Dagur íslenskrar náttúru
16. september
Fátt hefur mótað íslenska þjóð eins og náttúran. Íslendingar hafa aðlagað líf sitt samspili elds og ísa, dyntóttum veðurguðum og kröftugum sjávarföllum. Um leið hafa þeir notið alltumlykjandi náttúrufegurðar og haft lífsviðurværi sitt af ríkulegum gjöfum náttúrunnar.
Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðilegur 16. september ár hvert og eru einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Þeir sem nýta sér samfélagsmiðla í tengslum við daginn minntir á myllumerkin #íslensknáttúra og #DÍN.
Í tengslum við Dag íslenskrar náttúru afhendir umhverfis- og auðlindaráðherra tvær viðurkenningar; Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti og Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Upplýsingar um viðburði, verkefni og uppákomur í tilefni dagsins má senda til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á netfangið [email protected].
Fréttir
- Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðTilnefningar til fjölmiðlaverðlauna á Degi íslenskrar náttúru 202009.09.2020
- Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðSköpun til heiðurs náttúrunni09.09.2020
- Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðÓskað eftir tilnefningum til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru18.06.2020
Dagur íslenskrar náttúru
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.