Hvað er spunnið í opinbera vefi 2013?
Gerð var úttekt á opinberum vefjum ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga haustið 2013. Þetta var í fimmta sinn sem slík úttekt var gerð.
- Kynning á framkvæmd, úrvinnsla og helstu niðurstöðum – Myndband
- Skýrsla um könnunina Hvað er spunnið í opinbera vefi 2013?
- Niðurstöður fyrir 2013 sem og fyrri ára
- Listi í stafrófsröð með heildarstigum fyrir innihald, nytsemi, aðgengi, þjónusta og stig alls
- Hrágögn könnunarinnar, bakgrunnsbreytur, innihald, nytsemi, aðgengi, þjónusta, vefmælingar og lýðræði (Excel-skjal)
Flest stig í flokki ríkisvefja (stofnanir, ráðuneyti, ohf., annað) | Flest stig í flokki sveitarfélagavefja | |
---|---|---|
Ríkisskattstjóri (98 stig) Ísland.is (96 stig) Tryggingastofnun ríkisins (95 stig) Veðurstofa Íslands (93 stig) Háskóli Íslands (92 stig) Orkustofnun (92 stig) Sjúkratryggingar Íslands (92 stig) Tollstjóri (92 stig) | Reykjavíkurborg (97 stig) Garðabær (91 stig) Hafnarfjarðarkaupstaður (91 stig) Seltjarnarnes (90 stig) Dalvíkurbyggð (89 stig) |
Bestu vefirnir 2013 - Niðurstaða dómnefndar
Eins og í síðustu úttekt eru veittar viðurkenningar fyrir bestu vefina í tveimur flokkum: annars vegar besta ríkisvefinn og hins vegar besta sveitarfélagsvefinn. Fimm efstu vefirnir í hvorum flokki voru lagðir fyrir dómnefnd sem ákvað hvaða vefir skyldu hljótaviðurkenningu að þessu sinni. Dómnefndin fékk lista yfir efstu vefina í stafrófsröð og án upplýsinga um niðurstöður stiga. Dómnefnd hafði frjálsar hendur við að meta þá þætti sem réðu úrslitum en sérstök áhersla varlögð á viðmót og notendaupplifun.
Besti ríkisvefurinn: Ríkisskattstjóri - rsk.is
Besti sveitarfélagsvefurinn: Reykjavíkurborg - reykjavik.is
Dómnefndina skipuðu: Marta Lárusdóttir, lektor í tölvunarfræði við HR og sérfræðingur í viðmótshönnun, Rakel Pálsdóttir, forstöðumaður almannatengsla hjá Samtökum iðnaðarins, og Sigurjón Ólafsson, ráðgjafi hjá Funksjón vefráðgjöf.
Niðurstöður úttektarinnar voru kynntar á UT-deginum 2013 þar sem einnig voru kynnt nokkur verkefni í stefnu upplýsingasamfélagsins.
Framkvæmd könnunar á opinberum vefjum
Úttektin var tvíþætt. Annars vegar var um að ræða mat verktaka (Sjá ehf.) á viðkomandi vefjum samkvæmt fyrirfram ákveðnum gátlista. Það mat fór fram í lok september 2013. Hins vegar svöruðu tengiliðir opinberra aðila (ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga) spurningalista. Tengiliðirnir fengu einnig tækifæri til að gera athugasemdir við mat verktaka. Opið var fyrir svörun spurningalista og athugasemdir dagana 1.–10. október.
Innanríkisráðuneytið samdi við fyrirtækið Sjá ehf. um að framkvæma úttektina.
Opinn kynningarfundur um könnunina var haldinn 2. september 2013, upptaka frá honum er hér neðar á síðunni.
Spurningalistinn voru með svipuðu móti og áður, hér er hægt er að skoða hann og önnur gögn sem skýra framkvæmd könnunarinnar.
- Viðmót vefspurningalista
- Spurningalisti – aðgengilegur
- Listi yfir atriði varðandi aðgengi sem skoðuð eru
- Nánari lýsingu á framkvæmd aðgengishluta könnunarinnar
- Listi yfir stofnanir / sveitarfélög og þá vefi sem könnunin tekur til
- Mat á þjónustu – skýringar á útreikningum
Tól sem notuð voru við úttekt á aðgengi:
Hvað er spunnið í opinbera vefi?
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.