Hoppa yfir valmynd

Tvíhliða þróunarsamvinna

Tvíhliða þróunarsamvinna er lykilþáttur í þróunarsamvinnu Íslands og sá hluti hennar þar sem íslenskur almenningur getur séð með beinum hætti í hvað fjármunirnir fara og hvaða árangri er náð. Meginmarkmið tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands er að bæta lífsviðurværi fátæks fólks á grundvelli jafnréttis, mannréttinda og sjálfbærrar þróunar, í takti við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Í tvíhliða þróunarsamvinnu er lögð áhersla á samstarf við fátæk ríki í Afríku. Tvíhliða samstarfslönd Íslands eru Malaví og Úganda. Þar hafa sendiráð Íslands umsjón með samstarfinu, í samvinnu við deild tvíhliða þróunarsamvinnu á þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sem sinnir undirbúningi og eftirliti með verkefnum. Unnið er að undirbúningi frekara tvíhliða samstarfs við Síerra Leóne.

 

Í gegnum tvíhliða þróunarsamvinnu tekur Ísland beinan þátt í þróunarverkefnum í samstarfslöndum, þar sem áhersla er lögð á að bæta lífskjör í samfélögum og efla getu yfirvalda til að veita íbúum grunnþjónustu. Einnig er sérstök áhersla lögð á valdeflingu kvenna og ungmenna og í vaxandi mæli á loftslags- og umhverfismál.

Stefnumið og áherslur í tvíhliða þróunarsamvinnu

Tvíhliða stefnumið, sem byggja á stefnu Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu, setja ramma um sýn, áherslur og framkvæmd í tvíhliða samvinnu og skapa grundvöll fyrir gerð samstarfsáætlana í samstarfslöndum Íslands.

Lykiláherslusvið Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu:

  • Í forgrunni er áhersla á baráttu gegn fátækt og hungri með jafnrétti, mannréttindi og umhverfis- og loftslagsmál, sem sértæk og þverlæg málefni.
  • Stuðningur við samstarfsríki og héruð til að uppfylla skyldur sínar um aðgengi að grunnþjónustu á sviði mæðra- og ungbarnaheilsu, menntunar og hreins vatns og hreinlætis.
  • Áhersla á efnahagslega valdeflingu kvenna og ungs fólks, með aukna áherslu á og sköpun umhverfisvænna starfa.
  • Bláa hagkerfið og fiskimál, heildræn nálgun sem tekur til fiskimála sem og bættra lífsgæða fólks í sjávarbyggðum og uppbyggingu og nýsköpunar við nýtingu auðlinda hafs og vatna.

Tvíhliða þróunarsamvinna skilar árangri

Tvíhliða þróunarsamvinna hefur skilað góðum og sýnilegum árangri, sem hefur verið staðfestur með óháðum úttektum erlendra sérfræðinga og fengið góðar umsagnir í úttektum OECD-DAC, sem er samstarfsvettvangur framlagsríkja.

Malaví

 

Úganda

 

Framkvæmd tvíhliða þróunarsamvinnu

Við framkvæmd tvíhliða þróunarsamvinnu er lykiláhersla lögð á eignarhald samstarfsríkja, þátttöku stjórnvalda í undirbúningi og framkvæmd verkefna og samræmingu við þróunaráætlanir viðkomandi ríkja, sem og fagleg vinnubrögð með áherslu á árangur í takti við alþjóðleg viðmið.

Megináherslan í samstarfslöndunum tveimur er á héraðsþróunarverkefni þar sem unnið er í nánu samstarfið við héraðsstjórnir að uppbyggingu innviða og getu til að bæta grunnþjónustu við íbúa. Slík nálgun hefur marga kosti fyrir smáa samstarfsaðila líkt og Ísland, þar sem framlag okkar nær samlegðaráhrifum í gegnum ólíka geira, og fámennt landateymi nær að vinna samstíga með starfsfólki héraðsstjórnar til að hámarka árangur af okkar framlagi. Héraðsnálgun Íslands hefur reynst árangursrík í að efla getu héraðstjórnvalda, skilað sýnilegum árangri og vekur vaxandi áhuga annarra framlagsþjóða.

Í tvíhliða samvinnu starfar Ísland einnig náið með stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Þannig er leitast við að hámarka samlegð og árangur af starfi Íslands í tvíhliða og marghliða þróunarsamvinnu. Sem dæmi ná nefna samstarfsverkefni með WFP í Malaví um skólamáltíðir, samstarf við UNICEF í Úganda í flóttamannabyggðum, og samstarf við UNFPA í Síerra Leóne við að útrýma fæðingarfistli. Skólar GRÓ-UNESCO koma einnig að framkvæmd verkefna og íslensk félagasamtök styðja við fjölmörg verkefni í samstarfslöndum Íslands.


Malaví

Í Malaví hefur meginþungi samstarfsins verið í Mangochi héraði á sviði mæðra- og ungbarnaheilsu, menntamála og vatns- og hreinlætismála. Þá hefur verið öflugt samstarf við stofnanir Sþ, m.a. á sviði jafnréttismála og kyn- og frjósemisheilbrigðis í samstarfi við UNFPA og UN Women, sem og varðandi heimaræktaðar skólamáltíðir með WFP.

Uganda

Úganda

Í Úganda er starfað í tveimur héruðum. Í Buikwe héraði hefur verið í gangi samstarf síðan 2014 og í byrjun árs 2021 hófst samstarf við Namayingo hérað. Árið 2020 lauk samstarfsverkefni í eyjahéraðinu Kalangala sem hafði staðið síðan 2001. Í héraðsþróunarverkefnum er megináhersla á menntamál og vatns- og hreinlætismál. Í Úganda hefur einnig verið í gangi stórt verkefni með UNICEF sem snýr að bættum innviðum á flóttamannasvæðum í norður Úganda með áherslu á vatns- og hreinlætismál.

Tvíhliða þróunarsamvinna

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum