Hoppa yfir valmynd

35 Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands

Utanríkisráðuneytið

Umfang

Starfsemi á málefnasviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands er á ábyrgð utanríkis­ráðherra. Verkefnum er sinnt af aðalskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sendiskrifstofum í Afríku og fastanefndum Íslands í New York, Genf, París og Róm. Undir málefnasviðinu er einn málaflokkur sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun á tímabilinu 2022–2024.

Heildarútgjöld

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Yfirmarkmið alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands er útrýming fátæktar, virðing fyrir mannréttindum og bætt lífsskilyrði. Ísland styður framtíðarsýn heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra veröld þar sem hungri og sárafátækt hefur verið útrýmt, dregið hefur úr ójöfnuði innan og á milli ríkja, mannréttindi allra eru virt, allir eru jafnir fyrir lögum og lifa við frið og öryggi í daglegu lífi. Aðild Íslands að Sameinuðu þjóðunum er einn helsti grundvöllur þróunarsamvinnu og eru mannréttindi, jafnrétti kynjanna, umhverfis- og lofts­lags­mál bæði sértæk og þverlæg áherslumál og því leiðarljós í starfinu.

Fjármögnun

Fjárheimildir málefnasviðsins á fjárlögum 2024 nema 13.106,8 m.kr. Samkvæmt stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028, sem var samþykkt af Alþingi hinn 15. desember 2023, var gert ráð fyrir að framlög Íslands til þróunarsamvinnu færu hækkandi yfir tímabil fjármálaáætlunarinnar úr 0,35% af vergum þjóðartekjum (VÞT) árið 2024 í 0,46% árið 2028. Hækkunin er í samræmi við áform um að uppfylla markmið Sameinuðu þjóðanna um að iðnríki skuli veita sem nemur 0,7% af VÞT til þróunarsamvinnu. Fjárheimildir fjármála­áætlunar 2025–2029 gera ráð fyrir að framlög til alþjóðlegar þróunarsamvinnu Íslands nemi árið 2029 0,42% af VÞT, að óbreyttu. Endanleg niðurstaða ræðst m.a. af þróun efnahagsmála og útgjalda sem falla undir aðra málaflokka en teljast jafnframt til alþjóðlegrar þróunar­samvinnu. Hækkunin á tímabilinu er veruleg og nemur ríflega 9,1 ma.kr. sem er tæplega 70% hækkun, eða 11,2% á ári að meðaltali. Íslensk stjórnvöld styðja enn fremur við markmið Sam­einuðu þjóðanna um að veita a.m.k. 0,15–0,2% af VÞT til fátækustu landanna og munu hækk­andi framlög skila sér til þeirra fátækustu í samræmi við áherslur Íslands í þróunarsamvinnu. Ísland fylgir reglum Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) um hvaða útgjöld teljast til opin­berrar þróunarsamvinnu. Heildarframlög til málaflokksins taka einnig til umfangs framlaga og starfs þeirra ráðuneyta sem einnig fara með framlög til þróunarsamvinnu og sinna slíkum verk­efnum skv. skilgreiningu Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC). Því getur heildarrammi tekið einhverjum breytingum á grunni þeirra útgjalda. Má þar helst nefna kostnað við umsækj­endur um alþjóðlega vernd, málefni kvótaflóttafólks ásamt skuldbindingum Íslands vegna stofnfjárframlaga til Alþjóðaframfarastofnunar Alþjóðabankans (IDA) og Norræna þróunar­sjóðsins (NDF). Þá er viðbúið að á gildistíma fjármálaáætlunar verði ráðist í stofnfjáraukningu hjá Alþjóðabankanum til enduruppbyggingar og framþróunar (IBRD). Íslensk stjórnvöld munu áfram styðja við mannúðaraðstoð og uppbyggingu í Úkraínu.

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Útgjaldarammi

Helstu áherslur 2025–2029

Velsæld og sjálfbær þróun

35.1 Þróunarsamvinna

Verkefni

Í samræmi við lög um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, nr. 121/2008, samþykkti Alþingi stefnu stjórnvalda um markmið og áherslur Íslands í málaflokknum til áranna 2024–2028. Stefnan liggur til grundvallar markmiðum og mælikvörðum í þessu skjali. Aðgerða­áætlun og stefnumið veita frekari ramma um starfið. Yfirmarkmið alþjóðlegrar þróunar­samvinnu Íslands er útrýming fátæktar, virðing fyrir mannréttindum og bætt lífsskilyrði en heimsmarkmið SÞ eru jafnframt leiðarljós í starfinu. Lögð er áhersla á fjögur áherslusvið: mannréttindi og jafnrétti kynjanna, mannauð og grunnstoðir samfélaga, loftslags­mál og náttúruauðlindir, og mannúðaraðstoð og störf í þágu stöðugleika og friðar. Mannrétt­indi, kynjajafnrétti og umhverfis- og loftslagsmál eru sértæk og þverlæg áhersluatriði og því miðlæg í öllu starfi. Ísland vinnur að markmiðum sínum í gegnum tvíhliða samstarf í Malaví og Úganda þar sem stutt er við héraðsyfirvöld til að byggja upp getu til að veita íbúum grunn­þjónustu, einkum á sviði menntunar, heilsu og vatns- og hreinlætismála með aukna áherslu á verkefni sem lúta að mannréttindum og loftslagsmálum. Íslensk stjórnvöld sinna einnig tví­hliða samstarfi við Síerra Leóne á framangreindum sviðum og verður sendiráð opnað í Freetown 2024. Þá er unnið að markmiðum Íslands í samstarfi við fjölþjóðlegar stofnanir þar sem lögð er áhersla á stuðning við fjórar lykilstofnanir í þróunarsamvinnu; Alþjóðabankann, Barnahjálp SÞ (UNICEF), Mannfjöldasjóð SÞ (UNFPA) og stofnun SÞ um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women). Hvað loftslagsmálin áhrærir er lögð sérstök áhersla á störf Græna loftslagssjóðsins (Green Climate Fund), Aðlögunarsjóðinn (Adaptation Fund) og Norræna þróunarsjóðinn (Nordic Development Fund). Á sviði mannúðaraðstoðar er áfram lögð áhersla á stuðning við lykilstofnanirnar Samhæfingarskrifstofu aðgerða SÞ í mannúðarmálum (OCHA), Neyðarsjóð SÞ (CERF), Flóttamannastofnun SÞ (UNHCR) og Matvælaáætlun SÞ (WFP) auk Palestínuflóttamannaaðstoðar SÞ (UNRWA) og Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC). Auk framangreinds eiga íslensk stjórnvöld í samstarfi við aðra aðila, s.s. félagasamtök, fræðasamfélagið og aðila atvinnulífsins, ásamt því að starfrækja GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu þar sem lögð er áhersla á að byggja upp færni einstaklinga og styrk stofnana í þróunarríkjum með starfsemi Jafnréttisskólans, Jarðhitaskólans, Landgræðsluskólans og Sjávar­útvegs­skólans. Með hækkun framlaga má gera ráð fyrir auknum umsvifum í tvíhliða sam­starfslöndum og verður samstarf við önnur ríki tekið til skoðunar á tímabili fjármála­áætlunar. Þá verður samstarf við fjölþjóðlegar áherslustofnanir eflt, en t.a.m. er fyrirséð að framlög til Alþjóðaframfarastofnunarinnar (IDA) muni aukast í kjölfar 21. endurfjár­mögnunar stofnunarinnar. Aukið verkefnaumfang felur í sér þörf á fjölgun starfsfólks til að sinna umsýslu og viðhafa virkt eftirlit með tvíhliða og fjölþjóða starfi sem fjármagnað er af íslenska ríkinu, ásamt áframhaldandi uppbyggingu á sérfræðiþekkingu á sviði þróunarsamvinnu innan utan­ríkisráðuneytisins. Til að tryggja fagleg vinnubrögð og góða nýtingu fjármuna lúta öll mannúðar- og þróunarverkefni Íslands reglulegu faglegu eftirliti í samræmi við úttektarstefnu Íslands og Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC). Voru niðurstöður nýjustu jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) kynntar vorið 2023 og tekur ný stefna um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands mið af þeim tilmælum er þar koma fram.

Helstu áskoranir

Blikur eru á lofti varðandi heimsmarkmið SÞ og að öllu óbreyttu má teljast ólíklegt að þau náist árið 2030. Sárafátækt jókst á ný árin 2020–2022 í fyrsta sinn í tvo áratugi og búa nú um 700 milljónir jarðarbúa við sárafátækt. Þá hefur orðið bakslag í framförum, s.s. á sviði kynja­jafnréttis, heilbrigðisþjónustu og menntunar og víða er sótt að mannréttindum hinsegin fólks. Vaxandi ófriður og óstöðugleiki, m.a. í Jemen, Afganistan, á Sahel-svæðinu í Afríku og fyrir botni Miðjarðarhafs, ásamt neikvæðum áhrifum loftslagsbreytinga koma illa niður á fátækum þjóðum og hafa neikvæðar afleiðingar fyrir jaðarhópa og öll kyn. Umhverfistengd áföll eru tíðari þar sem hamfarir, flóð og þurrkar valda efnahagsþrengingum og fæðuóöryggi sem viðkvæmustu samfélögin búa ekki yfir viðnámsþrótti til að takast á við. Veikir efnahagslegir innviðir og takmörkuð atvinnutækifæri auka hættu á uppgangi öfgahópa og fólksflótta. Þörfin fyrir mannúðaraðstoð fer því stöðugt vaxandi en milljónir hafa flosnað upp af heimilum sínum og hrakist á vergang eða flótta. Þá hefur innrás Rússlands í Úkraínu haft umtalsverð áhrif í fátækustu þróunarríkjunum sem glíma enn við mikla hækkun matvælaverðs, eldsneytis og áburðar auk vaxtahækkana á mörkuðum vegna þessa. Kemur þetta til viðbótar þeim víðtæku áskorunum sem ríkin glímdu við fyrir, auk félagslegra og hagrænna afleiðinga sem enn gætir eftir Covid-19 faraldurinn. 

Tækifæri til umbóta

Sjálfbær þróun er grundvallaratriði í allri þróunarsamvinnu. Í takt við stjórnarsáttmála er lögð stóraukin áhersla á loftslagsmál í öllu starfi. Ísland stefnir að því að skipa sér sess á meðal þjóða sem eru í fararbroddi í loftslagsmálum með öflugu samstarfi við helstu fjölþjóðastofnanir sem starfa að framgangi heimsmarkmiða SÞ og ákvæða Parísarsamkomulagsins.

Unnið er að yfirfærslu þekkingar og íslenskra lausna til hagsbóta fyrir þróunarríki þar sem því verður viðkomið. Sér í lagi verður byggt á lausnum er viðkoma viðbrögðum við loftslags­breytingum, orkuskiptum og nýjum grænum lausnum, sem og aukinni sjálfbærni í nýtingu auðlinda hafsins og nýsköpun í bláa hagkerfinu.

Framlög verða aukin til loftslagstengdra fjölþjóðasjóða og stofnana sem sinna loftslags­verkefnum. Auk þess að efla stuðning við Græna loftslagssjóðinn (GCF) hefur Ísland gerst aðili að Aðlögunarsjóði SÞ um loftslagsbreytingar (UNFCCC), Climate Promise á vegum Þróunaráætlunar SÞ (UNDP) sem styður ríki við að ná landsmarkmiðum (NDC) gagnvart Parísarsamningnum og sjóð á vegum Þróunaráætlunar SÞ sem Alþjóðaveðurmálastofnunin nýtir til framkvæmda (SOFF) sem veitir stuðning til veðurathugana í tekjulægstu ríkjunum. Ísland styður áfram við stofnun um sjálfbæra orku fyrir alla (SEforALL) og mun á alþjóða­vettvangi áfram tala fyrir mikilvægi endurnýjanlegra orkugjafa til að draga úr losun gróður­húsalofttegunda, valdeflingu kvenna í orkuiðnaði og enda orkufátækt í heiminum. Í þessu sam­hengi verður samstarf við NDC Partnerships eflt, vettvang sem styður þróunarríki við fram­kvæmd loftslagsáætlana þeirra. Þá hefur Ísland lýst yfir fjárhagsstuðningi við nýjan loftslags­hamfarasjóð sem á að koma til framkvæmda 2024. Starf GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunar­samvinnu hefur enn fremur ríka tengingu við aðlögunaraðgerðir og mótvægisaðgerðir gegn loftslagsbreytingum. 

Auk stuðnings við fjölþjóðastofnanir verður aukinn kraftur settur í að samþætta umhverfis- og loftslagsmál í tvíhliða þróunarsamvinnu ásamt því að ráðast í sértækar aðgerðir. Leiðarljós í þessu starfi er að bæta aðlögunarhæfni samfélaga samhliða auknum aðgangi að endur­nýjanlegri orku, fæðuöryggi og meiri landgæðum. Nýsköpun í framleiðslu á endurnýjanlegri orku og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda býður upp á tækifæri til aukinna umsvifa á þessu sviði.

Fjölbreyttum stuðningi og samstarfi við Alþjóðabankann verður fram haldið en aðild að bankanum er lykilþáttur í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands enda einn umfangsmesti fjár­mögnunar­aðili þróunarverkefna og loftslagstengdra verkefna í þróunarríkjum. Þar má helst nefna þátttöku í væntanlegri hlutafjáraukningu IBRD og 21. endurfjármögnun Alþjóðafram­farastofnunarinnar, IDA. Hlutverk bankans hefur verið útvíkkað til að endurspegla aukna áherslu á hnattrænar áskoranir á borð við loftslags­mál. Til að gera bankanum kleift að vinna að tengdum verkefnum þarf að auka útlánagetu, og er þátttaka Íslands í tengdum ferlum til skoðunar. Þá verða áfram veitt framlög í sjóði um endurnýjanlega orku, málefni hafs og vatna, jafnréttismála og mannréttindamála. Sér­stökum stuðningi við Úkraínu hefur að stórum hluta verið varið í gegnum Alþjóðabankann og svo verður áfram enda gegnir bankinn lykilhlutverki í efnahagslegum stuðningi og endurreisn Úkraínu og mun hið sama gilda um uppbyggingu og endurreisn í Palestínu. Til þess að efla alþjóðastarf verða kjarnaframlög til áherslustofnana Íslands hækkuð, þátttaka á vettvangi þeirra aukin og mun Ísland taka að sér forystuhlutverk innan þeirra þegar við á. Þá verða stöður íslenskra sérfræðinga fjármagnaðar í tímabundin störf á sviði þróunar- og mannúðarmála innan alþjóðastofnana.  

Í tvíhliða þróunarsamvinnu styður Ísland við uppbyggingu mannauðs og samfélagslegra grunnstoða í samstarfsríkjunum Malaví, Síerra Leóne og Úganda. Landsáætlanir ramma inn starfið í hverju landi og samþætta stefnumið Íslands í þróunarsamvinnu og þróunarmarkmið viðkomandi lands. Sérstök áhersla er lögð á grunnþjónustu á borð við menntun, grunnheil­brigðis­þjónustu og aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, enda teljast þessi málefni til grundvallarmannréttinda. Ísland hefur skapað sér sérstöðu í samstarfsríkjunum Malaví og Úganda með heildrænni nálgun og beinu samstarfi við valin héruð, en góður árangur sem er náð með þessari nálgun og sterkt eignarhald heimamanna vakti athygli í nýlegri jafningarýni þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC). Í Síerra Leóne beitir Ísland sér í samstarfi við fjöl­þjóðastofnanir og félagasamtök með það að markmiði að stuðla að auknum lífsgæðum fólks í sjávarbyggðum auk áherslu á jafnréttismál. Með viðveru í Síerra Leóne og opnun sendiráðs í höfuðborginni Freetown að vori 2024 mun áframhaldandi starf í auknum mæli samþætta getuuppbyggingu yfirvalda innan samþykktra áherslusviða með það fyrir augum að innleiða héraðsnálgun og byggja þar á árangursríku starfi í hinum samstarfslöndunum tveimur. Sam­ræmist þetta áherslum Íslands í tvíhliða samstarfslöndum, en landsáætlanirnar taka m.a. mið af sjálfbærni verkefna. Verður aukinn kraftur settur í að skjalfesta árangur verkefna með skýrum tengingum við þróunarsamvinnustefnu Íslands. Mun skoðun á mögulegum nýjum samstarfs­löndum byggja á þeirri vinnu. Til að hámarka samlegð og árangur af starfi Íslands í tvíhliða starfi er einnig leitast við að starfa með öðrum samstarfsaðilum, t.a.m. fjölþjóðlegum stofn­un­um, félagasamtökum, aðilum atvinnulífs, fræðasamfélaginu og öðrum framlagsríkjum í sam­starfslöndunum.

 Virðing fyrir mannréttindum og jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna og stúlkna er undirstaða framfara, velsældar og efnahagsþróunar. Bakslag hefur orðið víða hvað varðar virðingu fyrir mannréttindum, kynjajafnrétti og lýðræði. Ísland hefur lengi beitt sér á sviði jafnréttismála og mun samþætta þessi málefni í verkefni á vegum íslenskra stjórnvalda, auk þess að styðja við sértæk verkefni. Áfram verður stutt við leiðandi stofnanir og verkefni á vegum fjölþjóðastofnana, t.d. UN Women og UNFPA. Í tvíhliða samvinnu verður lögð áhersla á verkefni á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis og -réttinda, sérstaklega mæðravernd, útrým­ingu fæðingarfistils og aðgerðir gegn kynfæralimlestingum. Samþætting málefna fatlaðs fólks við verkefni á vegum Íslands verður í brennidepli ásamt aukinni áherslu á bætta lagalega og félagslega stöðu hinsegin fólks, t.a.m. með stuðningi við alþjóðlega jafnréttissjóðinn (GEF) og staðbundin mannréttindasamtök, t.d. DefendDefenders í Úganda og mannréttindaskrifstofu Malaví. Stuðst er við kyngreind gögn í framkvæmd og vöktun verkefna þar sem tiltekið er fjöldi og hlutfall drengja og stúlkna sem nýtur góðs af verkefnum.

Rétturinn til lífs, frelsis og mannhelgi er grundvöllur annarra mannréttinda og leggur Ísland ríka áherslu á að leggja sín lóð á vogarskálarnar til að veita lífsbjargandi aðstoð. Margvíslegar ógnir steðja nú að og því er mannúðaraðstoð gert hærra undir höfði í nýrri stefnu alþjóðlegrar þróunarsamvinnu en áður. Til að bregðast við aukinni þörf fyrir mannúðaraðstoð hafa verið gerðir rammasamningar við fyrrnefndar lykilstofnanir og sjóði Sameinuðu þjóðanna sem hafa það hlutverk að bregðast við neyðar- og mannúðarástandi og veita lífsbjargandi aðstoð og vernd. Samstarf við Palestínuflóttamannaaðstoð SÞ (UNRWA) er einnig á grundvelli ramma­samnings og er gerð slíks samnings við Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) í skoðun. Ramma­samningar kveða á um kjarnaframlög sem auka fyrirsjáanleika fyrir stofnanir og eru gerðir með það að markmiði að auka skilvirkni og árangur. Átök og neyð eru í auknum mæli langvarandi og fást samfélög við margþætta vá. Sjónum verður áfram beint að samvirkni mannúðar­aðstoð­ar, þróunarsamvinnu og friðar­uppbyggingar. Samhæfing málefnasviðanna spannar allt frá stefnumótun til samhæfingar aðgerða á vettvangi og stuðlar að meiri heildaráhrifum en saman­lögð áhrif hinna einstöku þátta.

Önnur tækifæri til umbóta felast m.a. í að virkja enn betur krafta ólíkra aðila á Íslandi í þágu þróunarsamvinnu með öflugri samvinnu við atvinnulíf, félagasamtök og fræðasamfélagið í samræmi við heimsmarkmiðin. Á tímabili fjármálaáætlunar verður þátttaka fræðasamfélagsins í þróunarverkefnum styrkt, þá sérstaklega með tilliti til tvíhliða samstarfslanda Íslands og áherslusviða Íslands. Til að auka grósku í nýsköpun í samræmi við velsældarmarkmið ríkis­stjórnarinnar er lögð rík áhersla á að nýta íslenska virðisaukandi sérþekkingu. Leitast verður við að hlúa að viðleitni nýrra aðila sem sýna áhuga á þátttöku í þróunarsamvinnu, hvort sem um ræðir úr röðum frjálsra félagasamtaka eða aðila atvinnulífsins, og að auka samþættingu og samlegð þess starfs sem Ísland styður eða innir af hendi.

Bætt samskipti við almenning í samræmi við velsældaráherslur ríkisstjórnar fela í sér að­gerðir til að tryggja skilvirka og réttláta stjórnsýslu, m.a. með bættri stafrænni þjónustu, upp­lýsingamiðlun og öflugu eftirliti. Ísland veitir framlög í samræmi við skilgreiningar og fag­legan ramma Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) og sýnir vefsvæðið openaid.is framlög Íslands til þróunarsamvinnu. Útgjaldaliðir í rekstraráætlun eru skilgreindir í samræmi við til­mæli DAC og starfar utanríkisráðuneytið með öðrum ráðu­neytum sem sinna fjárumsýslu með þróunarfé að innleiðingu tilmæla DAC sem varða kostnað við umsækjendur um vernd og mót­töku kvótaflóttafólks. Gerð er krafa um skilvirka og ábyrga notkun á þeim fjármunum sem ráðstafað er til þróunarsamvinnu og mannúðar­aðstoðar. Á tímabili fjármálaáætlunar mun þróunarsamvinnuskrifstofa innleiða heildrænt árangursstjórnunarkerfi til að hámarka skil­virkni og áreiðanleika í vöktun verkefna og eftirliti, ásamt miðlun upplýsinga til haghafa og hagsmunaaðila.

Áhættuþættir

Helstu áhættuþættir innan málaflokksins eru margir hverjir hnattrænir og geta haft umtals­verð áhrif á framgang í átt að markmiðum. Aukinn óstöðugleiki og sívaxandi áhrif loftslags­breytinga ógna árangri sem náðst hefur á síðustu áratugum og víða er á brattann að sækja ef ná á heimsmarkmiðum SÞ um sjálfbæra þróun. Því er mikilvægt að halda áherslunni á stuðning við fátækustu þróunarríkin á sama tíma og framlög eru veitt til að bregðast við auknum óstöðugleika í Evrópu.

Innrás Rússlands í Úkraínu hefur sett mark sitt á starf Íslands á sviði þróunarsamvinnu líkt og annarra framlagsríkja og alþjóðastofnana. Lögð hefur verið rík áhersla á stuðning við Úkraínu og fyrirséð er að svo verði áfram í náinni framtíð. Vopnuð átök, uppgangur öfgahópa, hungur og fólksflótti eru enn fremur þættir sem kalla á margþátta viðbrögð og stuðning frá alþjóðasamfélaginu. Til að bregðast við þessu hafa framlög Íslands til mannúðar- og neyðar­aðstoðar verið aukin. Nýjar áskoranir á borð við heimsfaraldur og stríðsástand í Austur-Evrópu og Mið-Austurlöndum endurspegla mikilvægi þess að Ísland sýni sveigjanleika í sinni þróunar­samvinnu, hafi getu til að bregðast skjótt við og aðlaga starfið að þeim nýju aðstæðum sem upp kunna að koma hverju sinni.

Markmið og mælikvarðar

Markmið

HM

Mælikvarðar

Staða

2023

Viðmið

2025

Viðmið

2029

Uppbygging mannauðs og samfélagslegra grunnstoða með áherslu á mann­réttindi og jafnrétti kynjanna.

5.3

Fjöldi fólks sem fær aðgang að grunnheilbrigðis­þjónustu, þ.m.t. kyn- og frjósemisheilbrigðis­þjónustu í:

  1. Malaví
  2. Síerra Leóne
  3. Úganda

 

 

 

 

 

a) 4.5001

b) 120

c) 0

 

 

 

 

 

a) 89.000

b) 180

c) 7.000

 

 

 

 

 

a) 90.00

b) 15.000

c) 10.000

4.1,

4.2

Viðbótarfjöldi barna sem njóta góðs af mennta­verkefnum í:[2]

  1. Malaví
  2. Síerra Leóne
  3. Úganda

 

 

a) 2.365

b) 0

c) 9.580

 

 

a) 11.500

b) 19.800

c) 9.700

 

 

a) 18.000

b) 30.000

c) 15.000

6.1,

6.2

Viðbótarfjöldi fólks sem fær aðgang að hreinu vatn á hverju ári:

  1. Malaví
  2. Síerra Leóne
  3. Úganda

 

 

 

a) 4.0003

b) 04

c) 51.200

 

 

 

a) 11.500

b) 31.000

c) 80.000

 

 

 

a) 12.000

b) 40.000

c) 30.000

5.1, 5.2, 5.3, 5.6

Hlutfall heildarframlaga til jafnréttisverkefna skv. stiku OECD DAC.

81%5

≥81%

≥81%

5.5

Fjöldi nemenda sem útskrif­ast úr fimm mánaða námi frá Jafnréttisskóla GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarlanda (GRÓ GEST).

23

25

25

Viðbrögð gegn loftslagsvánni, efling viðnáms­þróttar samfélaga og sjálfbær nýting náttúruauðlinda.

13.1

Hlutfall heildarframlaga til loftslagsverkefna.

≥31%

≥31%

≥31%

13.1

13.a

Framlög til fjölþjóðlegra loftslagssjóða SÞ í m.kr.

1906

257

395

7.2, 14.2, 15.2

Fjöldi nemenda sem út­skrif­ast úr sex mánaða námi frá GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu

  1. Jarðhitaskólinn (GRÓ GTP)
  2. Landgræðsluskólinn (GRÓ LRT)
  3. Sjávarútvegsskólinn (GRÓ FTP)
  4. Fjöldi styttri námskeiða (5–7 dagar) á vegum GRÓ – Þekkingar-miðstöðvar þróunar-samvinnu í eða fyrir þróunarlönd.

a) 24

 

b) 23

 

c) 22

 

d) 15

a) 25

 

b) 25

 

c) 25

 

d) 18

a)25

 

b) 25

 

c) 25

 

d) 25

Ísland er áreiðan­legur samstarfs­aðili í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og mannúðar­málum og beitir sér í þágu stöðug­leika og friðar.

16

Fjármagn til mannúðar­starfa íslenskra félaga­samtaka í gegnum ramma­samninga í m.kr.

3037

310

360

Framlög til mannúðarstarfa alþjóðastofnana í m.kr.

1.803

2.522

3.000

 

Hlutfall framlags til mannúðar- og neyðar­aðstoðar í kjarnafram­lögum til lykilstofnana SÞ.

38%

41%

50%

 

Fjöldi útsendra fulltrúa Íslands hjá fjölþjóða­stofnunum.

9

9

9

 

Fjöldi Íslendinga í ungliðaáætlunum fjölþjóðastofnana.8

6

7

7

           

Líkt og boðað var í fjármálaáætlun 2024–2028 hafa markmið verið endurskoðuð með hliðsjón af nýrri stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu 2024–2028, sem samþykkt var á Alþingi í lok árs 2023. Markmið taka nú mið af þeim markmiðum sem sett eru í aðgerðaáætlun nýrrar stefnu. Þar sem breytingar hafa verið gerðar á einstaka mælikvörðum eru þær tilgreindar sérstaklega í neðanmálsgreinum.

Ítarlegra yfirlit yfir markmið og mælikvarða má finna í fylgiskjali 1 með stefnunni: Aðgerðaáætlun 2024–2025.

1 Tölur sýna viðbótarfjölda fólks sem fær aðgang að heilbrigðisþjónustu. Verkefni hafin í Nkhotakota og heildarfjöldi haghafa taldir fyrir 2024 og 2025 þegar árangur verður sýnilegur.
2 Mælikvarði uppfærður til að fanga viðbótarfjölda barna sem njóta stuðnings ár hvert.
3 Talan sýnir nú viðbótarfjölda ár hvert, en ekki heildartölu verkefna yfir verkefnatímabilið.
4 Verkefni hafin í Síerra Leóne en framkvæmdir standa yfir, haghafar því taldir 2024 og 2025.
5 Tvíhliða verkefni skv. skilgreiningu OECD DAC eru flokkuð eftir jafnréttisstiku. Bráðabirgðatölur fyrir 2023 að frádregnum framlögum til mannúðar- og uppbyggingarmála í Úkraínu.
6 Hér er vísað til sjóða sem heyra undir loftslagssamning SÞ (UNFCCC); Græna loftslagssjóðsins og Aðlögunarsjóðsins. Ísland greiðir einnig aukaframlag til hamfarasjóðs SÞ að upphæð 80 m.kr. 2024.
7 Með fyrirvara um tilfærslur milli rammasamninga um þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð.
8 Sú breyting hefur verið gerð milli ára að mælikvarði nær til ungliðaáætlana fjölþjóðastofnana en ekki einungis ungliðaáætlunar SÞ. Er breytingin tilkomin vegna samstarfs við Alþjóðabankann um ungliðastöðu.

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum