Hoppa yfir valmynd
13. október 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Ávarp heilbrigðisráðherra við skóflustungu að þjóðarsjúkrahúsi

Kæru gestir!

Við erum hér saman komin af einstöku tilefni. Hér verður í dag tekin skóflustunga að nýju þjóðarsjúkrahúsi, öflugum og tæknivæddum sjúkrahúskjarna þar sem unnt verður að veita skilvirka og margbrotna þjónustu fyrir landið allt í takt við nýjustu þekkingu í heilbrigðisvísindum til langrar framtíðar. Hér verður byggt á reynslu og þekkingarstarfi okkar færasta fólks á þeim vettvangi og sótt til framfara á breiðu sviði heilsugæslu og bráðaþjónustu í þágu allra landsmanna. Og ekki bara þeirra, heldur líka þeirra mörgu gesta sem sækja heim landið okkar af vaxandi þunga ár hvert. Hér verður búið í haginn fyrir þá sem sinna þjónustu við sjúklinga árið um kring og alla þá sem þurfa á þeirri þjónustu að halda. Hingað verður gott að leita og hér á að vera gott að vera.

Þetta skref er í huga mínum og okkar allra mikið gleðiefni og langþráð gæfuspor. Eftir þessu hefur þjóðin beðið í áraraðir, að þessu hefur verið unnið um langa hríð og nú er runninn upp sá dagur að draumurinn fær að rætast. Uppbygging heilbrigðisþjónustu um allt land er eitt af forgangsmálum ríkisstjórnar Katínar Jakobsdóttur og dagurinn í dag markar tímamót í heildaruppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Nýtt sjúkrahús mun bylta allri aðstöðu fyrir heilbrigðisþjónustuna í heild sinni, ekki einungis fyrir sjúklingana og aðstandendur sem hingað koma eða okkar góða og öfluga starfslið við Landspítalann heldur líka nemendur, kennara og rannsakendur við háskóla þjóðarinnar og starfsfólk heilbrigðisþjónustu um allt land. Hér verða úrræði og bjargir sem efla ekki einungis allt starf hér í Landspítalanum í þágu sjúklinga og þekkingar heldur koma heilbrigðisþjónustunni allri til góða og létta róðurinn fyrir sjúklinga og starfsfólk á ótal sviðum heilsugæslu og umönnunar um  heilbrigðiskerfið allt.

Kjarninn sem hér á að rísa og verður hjartað sem slær dag og nótt í nýju sjúkrahúsi helst í hendur við fjölda bygginga sem fyrir eru og margar byggingar sem á eftir koma. Í síðustu viku fögnuðum við þeim áfanga að skrifað var undir samning um fullnaðarhönnun á rannsóknahúsi Landspítalans og sjúkrahótel verður tekið í notkun innan skamms. Einnig er hægt að nefna bílastæða- og skrifstofuhús, og uppbyggingu heilbrigðisvísindasviðs HÍ í Læknagarði. Á vegum Háskóla Íslands er unnið að þróun bygginga og margbrotinnar starfsemi hér á jaðri spítalasvæðisins og Reykjavíkurborg leggur drög að miðstöð umferðar um höfuðborgarsvæðið hér næst okkur í vesturátt. Þá er í öðrum áfanga sem nú hillir undir og huga þarf að sem fyrst gert ráð fyrir aukinni göngudeildarþjónustu og öflugri þjónustu við sjúklinga á þeim grunni hér austan við torgið sem hér verður framan við aðalbygginguna gömlu og glæstu frá öldinni sem leið. Hér sunnan og handan við Hringbrautina nýju eiga svo eftir að rísa íbúðahverfi með litríkt mannlíf og nýja tíma, fólk á öllum aldri og úr öllum áttum en ekki síst ungt fólk með nýja drauma og nýja sýn. Það hefur stundum verið deilt um þá uppbyggingu sem hér er að verða að veruleika en í dag bindum við endi á þau deilumál og stígum skrefið til móts við nýja tíma.

Eins og oft er með stór þjóðþrifamál í Íslandssögunni þá voru það konur sem tóku höndum saman og hófu snemma á síðustu öld baráttu fyrir því að reistur yrði spítali í Reykjavík, sem síðar varð Landspítalinn í Reykjavík og tók til starfa 20. desember 1930. Umræða um þjóðarsjúkrahús, sjúkrahús sem þjónar öllu landinu hafði þá verið uppi allt frá því á 19. öld. Hér er ekki tóm til að rekja alla þá sögu eða það sem á eftir fylgdi en eins og við öll vitum hefur þjóðarsjúkrahúsið á síðustu áratugum starfað í fjölmörgum húsum á höfuðborgarsvæðinu, húsum sem flest eru hönnuð upp úr miðri síðustu öld og svara ekki lengur þeim kröfum sem nú eru gerðar til húsnæðis fyrir sjúkrahús.

Um síðustu aldamót hófst fyrir alvöru umræðan um uppbyggingu þjóðarsjúkrahúss á einum stað. Landspítalinn og Sjúkrahús Reykjavíkur voru sameinuð og rætt var af miklum þunga um sameinað húsnæði fyrir Landspítala í nálægð við Háskóla Íslands og þau samlegðaráhrif sem því fylgdu. Á árunum 2001 og 2002 lögðu erlendir ráðgjafar fram hugmyndir um mögulegt staðarval, hins vegar sænsku ráðgjafarnir White arkitektar með hugmyndum um uppbyggingu hér við Hringbraut, í Fossvogi og á Vífilstöðum og annars vegar dönsku ráðgjafarnir Ementor með skýrslu um framtíðarþróun Landsspítalans.Starfsnefnd undir forystu Ingibjargar Pálmadóttur og á vegum heilbrigðisráðuneytisins lagði svo til að meginstarfsemi sameinaðs Landspítala, Háskólasjúkrahúss, yrði við Hringbraut. Þar voru fyrir dýrmætar spítalabyggingar sem annars þyrfti að reisa á nýjum stað, þar mætast margar mikilvægustu samgönguæðar höfuðborgarsvæðisins. Þar er mestur mannfjöldi yfir daginn  og þar eru á næstu grösum helstu bækistöðvar þekkingar og vísindastarfs í landinu.

Margir ráðherrar heilbrigðismála hafa átt þátt í umræðu og vinnu um nýtt sjúkrahús en það var Álfheiður Ingadóttir, þáverandi heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, sem setti af stað verkefnastjórn, sem síðar varð að opinbera hlutafélaginu Nýr Landspítali, til að vinna að undirbúningi og uppbyggingu Hringbrautarsvæðisins. Þar var ekki síst byggt á niðurstöðum norsku ráðgjafanna Momentum og Hospitalet frá árinu 2009 um húsnæðismál Landspítala og samanburð valkosta. Með lögum samþykktum á á Alþingi 2010 hlaut verkefnið brautargengi og vinna við forhönnun bygginga og þróun skipulags fyrir svæðið í samvinnu borgaryfirvöld gat hafist. Skipulagsferlið, samráð og hönnunarvinna tóku tímann sinn eins og eðlilegt er þegar um svo umfangsmikla og flókna framkvæmd er að ræða en sviptingar í efnahagsmálum og stjórnmálum áttu líka sinn þátt í að allt þetta ferli varð lengra og strangara en annars hefði orðið. Nú stöndum við loksins frammi fyrir því spennandi verkefni að ráðast í uppbygginguna sjálfa og því hljóta allir að fagna. Framkvæmdin verður vandasöm og henni fylgir að sjálfsögðu ýmislegt óhagræði fyrir þá sem hér búa og starfa til skamms tíma en með samstilltu átaki okkar allra og góðum hug til góðra verka verða þeir erfiðleikar fljótt að baki.

Enginn þarf að velkjast í vafa um að þjóðarsjúkrahúsið er og verður í lykilhlutverki fyrir alla heilbrigðisþjónustu í landinu. Þjóðarsjúkrahús sinnir flóknustu heilbrigðisþjónustu sem þörf er á hérlendis og þarf að geta gegnt því mikilvæga hlutverki sínu sem allra best. Nýja sjúkrahúsið mun uppfylla nútímakröfur sem gerðar eru til heilbrigðisþjónustu og standa undir þeirri ábyrgð að vera sjúkrahús allra landsmanna.

Kjarninn sem nú verður grafinn hér í jörð og reistur við himinn á mörgum hæðum var forhannaður á árunum 2009 til 2012 í samvinnu við starfslið Landspítalans og síðan þá hefur hönnunin verið rýnd og beitt við það aðferðafræði sem nefnist LEAN. Hönnunarhópurinn Corpus 3 eru aðalhönnuðir hússins en að honum standa hvorki meira né minna en níu innlend og erlend hönnunarfyrirtæki.

Kjarninn er stærsta bygging Hringbrautarverkefnisins, tæpir 70 þúsund brúttófermetrar og mun gegna lykilhlutverki í starfsemi spítalans. Þar munu fara fram sérhæfðar aðgerðir og rannsóknir þar sem stuðst verður við háþróaða tækni og sérhæfða þekkingu. Kröfur um aðbúnað og alla umönnun sjúklinga eru sambærilegar og á nýjum sjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar. Byggingin gegnir hlutverki kjarna í starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga. Sameining á bráðamóttökum, gjörgæslu og öðrum starfseiningum er lykilatriði og á að tryggja rétt og gott flæði innan og utan hússins. Allar sjúkrastofur eru einbýli með sérstakri snyrtingu og góðri aðstöðu fyrir aðstandendur innan stofa og utan. Kjarninn tengist öðrum byggingum spítalans með sjálfvirkum tæknikerfum en einnig verður innangengt á milli bygginga með göngum og yfir brýr, úr kjarna og yfir í eldri byggingar, nýja rannsóknahúsið og í nýjan og aukinn Læknagarð Háskóla Íslands.

Ég vil að lokum óska þakka öllum þeim sem komið hafa að framkvæmd þessa stóra verkefnis. Hönnuðir, annað tæknifólk, starfsfólk og stjórnendur Landspítala, háskólarektorar og starfsfólk Háskóla Íslands ásamt svo mörgum fleirum eiga þakkir skildar. Ekki má gleyma mikilvægri aðkomu Reykjavíkurborgar, borgarstjórnar og borgarstjóra að skipulagsmálum, leyfisveitingum og eftirliti. Enn síður má gleyma starfsfólki Hringbrautarverkefnisins, svo og stjórn NLSH? ohf., starfsmönnum Framkvæmdasýslu ríkisins, Ríkiskaupa, velferðarráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis. Allt þetta fólk sinnir uppbyggingarverkefninu í dagsins önn, hefur gert um árabil og mun gera meðan það stendur yfir. Hér koma margir að verki og þurfa að allir gera sitt til ítrasta til að vel takist til.

Lokaorð mín í síðustu viku við samningsgerðina um rannsóknahúsið eiga enn vel við. Á stundum sem þessum má ekki gleyma því að  markmiði verkefnisins er að tryggja enn betri þjónustu við sjúklinga og góðan stuðning við starf heilbrigðisstétta um allt land. Við viljum geta boðið upp á heilbrigðisþjónustu sem stenst samanburð við það sem best gerist í heiminum og nýtt þjóðarsjúkrahús, móðursjúkrahúsið, eins og ég kýs stundum að kalla það, er mikilvægur liður í því verkefni. Sjúklingar, starfsfólk spítalans og Háskóla Íslands eru hornsteinar að því samfélagi sem er hér við Hringbrautina. Við sem komum að verkefnum sjúkarhússins á annan hátt hlúum að því samfélagi og veitum því brautargengi. Þessi þáttaskil snúast ekki bara um hús heldur um nýjan kafla, draum sem er að rætast, stórhug sem hefur birst og hljómað um árabil þvert á pólitíska flokka og snertir alla flóru heilbrigðisþjónustunnar, kafla sem snýst um að hefja loksins einhverja stærstu og flóknustu byggingarframkvæmd Íslandssögunnar, byggingu sem eins og margar merkar byggingar fyrri tíðar verður hluti af traustum samfélagssáttmála um heilbrigðisþjónustu í fremstu röð og fyrir alla, ekki bara suma heldur okkur öll.

Sá samningur sem við skrifum nú undir vegna jarðvinnu við spítalans og sú táknræna athöfn sem fram fer hér á eftir, skóflustungan,  staðfestir að hugur fylgir máli og það er með sérstakri ánægju sem ég sem ráðherra heilbrigðismála í landinu fylgi þessu verkefni eftir. Dagurinn í dag markar tímamót og hér er enn einum stórum áfanga náð á langri vegferð. Til hamingju öll!

Takk fyrir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum