Starfshópur til að fylgja eftir tillögum í greingargerð starfshóps heilbrigðisráðuneytisins um yngra fólk á hjúkrunarheimilum
Starfshópur heilbrigðisráðuneytisins með fulltrúum félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, Örykjabandalags Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, til að fylgja eftir tillögum í greinargerð starfshóps heilbrigðisráðuneytisins og félags- og vinnumarkaðsráðneytisins um yngra fólk á hjúkrunarheimilum.
Starfshópnum er falið að vinna áfram með þær grunnupplýsingar sem fram koma í greinargerð ráðuneytahópsins, ásamt því að meta sérstaklega þarfir yngri einstaklinga á hjúkrunarheimilum. Í fyrstu verði fyrst og fremst horft til þeirra einstaklinga sem eru yngri en 60 ára og flust hafa á hjúkrunarheimili. Greina þarf þarfir einstaklinga fyrir félags- og heilbrigðisþjónustu sérstaklega og finna úrræði við hæfi, ef vilji einstaklingsins stendur til þess að skipta um búsetu. Þá er hópnum einnig falið að skoða aukna samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með NPA samning. Lagðar verði fram tillögur að kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, með mati á umfangi félagslegra þarfa og heilbrigðisþarfa. Skoða sérstaklega hvernig bæta megi upplýsingar til fatlaðs fólks um hvert það getur leitað eftir þjónustu og mati á þjónustuþörf.
Þá er starfshópnum ætlað að hafa víðtækt samráð við félagasamtök um langvinna sjúkdóma.
Starfshópinn skipa
- Selma M. Reynisdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneyti án tilnefningar, formaður
- Anna Klara Georgsdóttir, tilnefndur af félags- og vinnumarkaðsráðuneyti
- Valgerður Guðbjörnsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Rannveig Einarsdóttir, tilnefnd að Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Bergþóra Bergsdóttir, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands
Hrafnhildur Ýr Erlendsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, er starfsmaður hópsins.
Starfshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 28. apríl 2023. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum til heilbrigðisráðherra fyrir lok árs 2023.