Sjúkraliðar - sumarafleysingar í Heimahjúkrun HH
Sjúkraliðar - sumarafleysingar í Heimahjúkrun HH
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi óskar eftir að ráða sjúkraliða í heimahjúkrun í 80% sumarafleysingu frá og með 15. maí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða dag-, kvöld-, og helgarvaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum. Sjúkraliðar bera ábyrgð á að vinna samkvæmt hjúkrunaráætlun sem lögð er til grundvallar hjúkrunarmeðferð skjólstæðinga. Sjúkraliðar veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra leiðbeiningar og fræðslu. Þeim ber að sinna öðrum verkefnum sem þeim er falið af teymisstjóra og taka þátt í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stofnunar. Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Sjúkraliði vinnur náið í teymi ásamt teymisstjóra, hjúkrunarfræðingi og öðrum sjúkraliðum. Teymisstjóri fer fyrir teyminu. Sjúkraliði mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.
Hæfnikröfur
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi - Reynsla af heimahjúkrun æskileg - Mikil samskiptahæfni - Faglegur metnaður og áhugi á að vinna við heimahjúkrun - Sjálfstæði í starfi - Gilt ökuleyfi - Hreint sakavottorð - Góð íslensku og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 01.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Kristín Barkardóttir -
[email protected]
-
513-6900
Hildur Sigurjónsdóttir -
[email protected]
-
513-6900