Aðjúnkt í Hjúkrunarfræðideild
Aðjúnkt í Hjúkrunarfræðideild
Laust er til umsóknar hálft starf (50%) aðjúnkts í hjúkrunarfræði með áherslu á kennslu í barnahjúkrun. Leitað er að hjúkrunarfræðingi með sérþekkingu á sviði barnahjúkrunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Við leitum að öflugum einstaklingi með góða þekkingu á barnahjúkrun og barnasjúkdómafræði. Starfið felur í sér að hafa umsjón með námskeiði í barnahjúkrun, fræðilega og klíníska kennslu í barnahjúkrun, rannsóknir og stjórnun. Næsti yfirmaður er formaður hjúkrunarfræðideildar. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri. Staðan er veitt frá og með 1. ágúst 2021. Um ótímabundið starf er að ræða. Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á sveigjanlegt nám í hjúkrunarfræði. Námið er fjögurra ára nám til BS prófs. Niðurstöður kannana meðal nemenda sýna ánægju með gæði og innihald námsins. Nám í hjúkrunarfræði er fyrir öll kyn. Samkeppnispróf eru haldin við lok fyrsta misseris og ákvarða hverjir fá að halda áfram námi á vormisseri fyrsta árs. Fjöldi nemenda eftir haustmisseri fyrsta árs er u.þ.b. 75 á hverju kennsluári. Fastráðnir starfsmenn deildarinnar er tæplega 20 manna metnaðarfullur hópur, samsettur af akademískum starfsmönnum, verkefnastjórum og aðjúnktum. Einnig koma fjölmargir stundakennarar að kennslu í deildinni bæði í fræðilegu og klínísku námi.
Hæfnikröfur
- Meistarapróf í hjúkrunarfræði eða heilbrigðisvísindum.
- Sérmenntun á sviði hjúkrunar með áherslu á barnahjúkrun og a.m.k. 2 ára starfsreynsla á þessu sviði.
- Að minnsta kosti 2 ára klínísk reynsla á heilbrigðisstofnun og virkni í klínísku starfi.
- Sérfræðileyfi á tengdu fræðasviði eða virk umsókn um sérfræðileyfi.
- Reynsla af háskólakennslu og fræðilegri og klínískri leiðbeiningu á háskólastigi er kostur.
- Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla þekkingu.
- Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli.
Umsókn skal fylgja:
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
- Staðfest afrit af prófskírteinum.
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
- Tilnefna skal a.m.k. tvo umsagnaraðila og er æskilegt að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda. Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingum, og reglur fyrir Háskólann á Akureyri. nr. 387/2009. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Hrönn Svavarsdóttir -
[email protected], deildarformaður Hjúkrunarfræðideildar
-
4608471
Eydís Kr Sveinbjarnardóttir -
[email protected], forseti Heilbrigðisvísindasviðs
-
4608482