Yfirlæknir bráðahluta öldrunarlækninga á Landspítala
Yfirlæknir bráðahluta öldrunarlækninga á Landspítala
Laus er til umsóknar staða yfirlæknis bráðaþjónustu öldrunarþjónustu Landspítala sem heyrir undir meðferðarsvið. Næsti yfirmaður er yfirlæknir öldrunarlækninga Landspítala í heild sem ber ábyrgð á mannafla, rekstri og faglegri frammistöðu (sk. þríþætt ábyrgð). Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2021 eða eftir nánara samkomulagi. Gerð er krafa um helgun í starfi.
Á bráðahluta öldrunarlækninga er veitt greining, meðferð og stuðningur við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Þjónustan er veitt á bráðaöldrunarlækningadeild B4 í Fossvogi og ráðgjafaþjónustu öldrunarlækna á Landspítala.
Öldrunarlækningadeild Landspítala skiptist í nokkra hluta: bráða- og ráðgjafahluta, heilabilunarhluta, almennan hluta, dag-, göngu- og samfélagsþjónustuhluta (DGS) auk hjúkrunardeildar á Vífilsstöðum.
Rannsóknarstofa Landspítala og Háskóla Íslands í öldrunarfræðum er starfrækt á sviðinu og þar fer fram öflug vísindastarfsemi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber læknisfræðilega ábyrgð sem faglegur yfirmaður á bráðahluta öldrunarlækningadeildar
- Skipuleggur innra vinnufyrirkomulag þeirra lækna sem á hverjum tíma starfa á einingunni
- Starfar með yfirlækni öldrunarlækningadeildar og forstöðumanni öldrunarkjarna til heildarsamhæfingar á öldrunarþjónustu Landspítala
Hæfnikröfur
- Íslenskt sérfræðileyfi í öldrunarlækningum
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á því sviði
- Stjórnunarreynsla
- Leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Færni til að leiða umbótastarf og breytingar
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
» Fyrri störf, menntun og hæfni
» Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
» Vottað afrit af prófskírteinum
» Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á)
» Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum
» Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum
» Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
» Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis (sækja skjalið hér) og sendið sem fylgiskjal
» Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem rúmlega 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Pálmi V Jónsson -
[email protected]
-
824 5615
Guðný Valgeirsdóttir -
[email protected]
-
824 6029
Ath. fylla skal út umsókn um læknisstöðu hér hjá Embætti landlæknis