Sjúkraþjálfari við Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkraþjálfari við Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkraþjálfari óskast til starfa á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um framtíðarstarf er að ræða.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Faglegur yfirmaður er Lucienne ten Hoeve, yfirsjúkraþjálfari.
Sjúkraþjálfarar við SAk starfa á tveimur starfsstöðvum, ýmist við bráðadeildir á sjúkrahúsinu við Eyrarlandsveg eða við öldrunarlækningar og endurhæfingu á Kristnesspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst almenn vinna sjúkraþjálfara í þverfaglegu umhverfi á bráðadeildum sjúkrahússins. Lögð er áhersla á góða þjónustu við skjólstæðinga, þverfaglegt samstarf og faglega þróun. Um er að ræða dagvinnu og einstaka vakt um helgar.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa fullgilt próf í sjúkraþjálfun og íslenskt starfsleyfi. Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu, reynslu og áhuga, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.
Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 65%
Umsóknarfrestur er til og með 19.04.2021
Nánari upplýsingar veitir
Lucienne ten Hoeve -
[email protected]
-
860-0547
Hulda Sigríður Ringsted -
[email protected]
-
463-0100