Hjúkrunarfræðingur - sumarafleysing í heimahjúkrun
Hjúkrunarfræðingur - sumarafleysing í heimahjúkrun
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir hjúkrunarfræðingi í sumarstörf við heimahjúkrun. Um er að ræða tímabundið starf í vaktavinnu morgun, kvöld og helgar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júní eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingur vinnur náið með teymisstjóra. Starfssvið hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni. Er einnig í samskiptum og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Fjölbreytt reynsla af hjúkrun er æskileg
- Faglegur metnaður og áhugi á teymisvinnu
- Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Sjálfstæði í starfi
- Góð almenn tölvuþekking og færni í töluðu og rituðu íslensku máli
- Gilt ökuleyfi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Kristín Barkardóttir
-
[email protected]
-
513 6900
Hildur Sigurjónsdóttir
-
[email protected]
-
513 6900