Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Hlíðum
Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Hlíðum
Laus er til umsóknar ótímabundin staða sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Hlíðum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júní eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall getur verið 100% eða minna. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nýsköpun og framþróun. Til greina kemur að ráða tímabundið áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, ljósmæðrum, sjúkraþjálfara og riturum. Heilsugæslan Hlíðum þjónar fyrst og fremst íbúum Hlíðasvæðis, sem takmarkast af Snorrabraut og Kringlumýrarbraut og sjóa á milli, en allir eru velkomnir á stöðina.
Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Unnið er að flutningi heilsugæslunnar í stærra og betra húsnæði.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. í almennri læknismóttöku, heilsuvernd, bráðaþjónustu á daginn og síðdegisvakt. Er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.
Hæfniskröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sérfræðimenntun í heimilislækningum
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Reynsla af kennslu er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
- Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Góð enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Svavarsdóttir - [email protected] - 513-5900