Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Hlíðum
Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Hlíðum
Sjúkraþjálfari óskast í ótímabundið starf við Heilsugæsluna Hlíðum. Starfshlutfall er 10%. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan Hlíðum þjónar fyrst og fremst íbúum Hlíðasvæðis, sem takmarkast af Snorrabraut og Kringlumýrarbraut og sjóa á milli, en allir eru velkomnir á stöðina. Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraþjálfari tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá heilbrigðisstarfsmanni. Hann framkvæmir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir. Hreyfistjóri tekur saman greinargerð og kemur henni til annarra meðferðaraðila þegar tiltekinn tími er liðinn frá því að meðferð hófst og við lok hennar.
Hæfniskröfur
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf
- Þriggja ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari
- Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 10%
Umsóknarfrestur er til og með 23.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Svavarsdóttir
-
[email protected]
-
513-5900
Anna Ólafsdóttir
-
[email protected]
-
513-5900